heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og hvet hann til að beita þeim áhrifum sem hann hefur innan ríkisstjórnarflokkanna til að koma þessum málum áfram. Mér leist svona temmilega vel á „spektrúmið“ ef ég má sletta aðeins, dögum eða vikum. Ég er miklu hlynntari því að við komum þessu verkefni af stað innan fárra daga heldur en innan fárra vikna, vegna þess að það er beðið eftir þessu verkefni. Mannvirki standa tóm, hálfköruð mannvirki, þar sem vinnufúsar hendur bíða eftir að komast að verki, þannig að við höfum beðið nóg. Þess vegna er nauðsynlegt, vonandi er þetta fyrsta gagnaverið af mörgum, að það verði greitt úr þessu til að okkur takist að laða hingað til lands fleiri atvinnutækifæri, fleiri tegundir af erlendri fjárfestingu, til að skapa hér atvinnu og verðmæti.