heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Skúla Helgasyni fyrir framsögu hans. Ég hef tvær spurningar sem ég vil beina til hans, annars vegar vegna — ég ætla í fyrsta lagi að óska ykkur til hamingju með að frumvarpið sé komið á rekspöl eftir þessar miklu og erfiðu fæðingarhríðir.
Það er greinilegt að hér ræðir um fordæmisgefandi hluti. Forsenda þess að meiri hluti Alþingis ætlar að hleypa slíku frumvarpi í gegn er að eigandi Novator afsali sér þeim réttindum sem ávinnst fyrir aðra hluthafa.
Vil ég spyrja hv. þingmann: Mun hann leggja til í framhaldinu að gerðar verði svipaðar breytingar á frumvarpi sem nú er til meðferðar hjá iðnaðarnefnd um ívilnanir vegna nýfjárfestinga, þar sem tekin verður afstaða til þess að ekki verði veittar ívilnanir vegna nýfjárfestinga ef um er að ræða einhvern þann er rannsóknarnefnd Alþingis hefur getið um í sinni skýrslu?
Ég ætla líka að spyrja: Er hann tilbúinn að beita sér fyrir því að þeir sem þegar hafa lagt fram fé í gagnaver, svipaða starfsemi og hér um ræðir, njóti svipaðra ívilnana og Verne Holdings mun gera nái þetta frumvarp fram að ganga?