heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur fyrir andsvarið. Mér fannst reyndar aðeins of langt gengið í byrjun að þakka mér fyrir spillingu í Samfylkingunni.
Ég vil taka það fram að ég er hlynnt gagnaverum og sérstaklega í Reykjanesbæ þar sem atvinnuástandið er hve verst. Sökum þess að þetta er fyrsta gagnaverið í þessum stærðarflokki sem við leggjum upp með finnst mér sérstaklega mikilvægt að við vöndum til allra verka. Þetta er sérsamningur en það er komið frumvarp um rammasamning um ívilnanir. Nefndin gerði breytingartillögu sem laga skattaívilnanirnar að því sem þar stendur. Það er rétt að þetta eru sérlög um eitt fyrirtæki en lög að mínu mati eiga almennt að vera almenn en ekki um einstök fyrirtæki eða einstaklinga.