heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ.
Virðulegi forseti. Við ræðum býsna snúið mál. Ég er á nefndaráliti meiri hlutans með fyrirvara en sá fyrirvari hefur nokkrar hliðar. Í fyrsta lagi hefur þetta mál ekki verið fullrætt innan þingflokks framsóknarmanna og því óljóst hvernig þingflokkurinn nálgast það, hvort hann gerir það í heild eða einstakir þingmenn. Ég á nú frekar von á því að skiptar skoðanir verði um málið, það hefur svo sem verið kynnt þar en eftir að nefndin skilaði af sér er ekki búin að fara fram sú umræða sem ég vil gjarnan taka með mínu fólki áður en hægt er að segja að ég sé einhver talsmaður þingflokksins alls hér.
Fyrirvarinn sem ég set við þetta er líka sá, eins og einhver orðaði það hér, að við séum mörg hver ef ekki öll í iðnaðarnefnd með ákveðið óbragð í munninum við að standa í þessu brasi. Hins vegar togast á í manni sú staðreynd að þetta er mikilvægt verkefni fyrir uppbyggingu efnahagslífsins á Íslandi. Nefndin hefur verið upplýst um það, m.a. af þeim sem sækja erlenda fjárfesta til landsins, að þetta verkefni sé talið vera mikilvægt frumkvöðlaverkefni eða brimbrjótur fyrir fleiri slík verkefni. Ég veit að svo er. Ég veit það og trúi því sem þessir aðilar hafa sagt okkur, t.d. frá Fjárfestingarstofu, utanríkisráðuneyti og fleirum. Ég veit það líka frá öðrum aðilum sem eru að brasa við að sækja starfsemi sem þessa til landsins.
Hvað eigum við að gera? Ég vil nota tækifærið til þess að þakka formanni nefndarinnar fyrir það hvernig hann hefur tekið á málum í nefndinni því að ég held að ekki sé hægt að klaga neitt upp á hann. Við höfum reynt að nálgast þetta frá öllum hliðum. Það er búið að velta upp alls konar möguleikum til þess að gera þennan umdeilda aðila óvirkan með einhverjum hætti. Niðurstaðan er að fara með þetta í 2. umr. Við verðum að átta okkur á því, öll sem hér tölum, að þetta þarf ekki að vera endanleg útfærsla. Ef eitthvað kemur upp þarf nefndin að sjálfsögðu að taka það fyrir, en ég tel að menn séu komnir nánast á leiðarenda með hvað hægt er að gera ef ekki á hreinlega að hætta við verkefnið. Það er auðvitað valkostur sem hægt er að greiða atkvæði um, þ.e. að segja: „Nei takk, við viljum þetta ekki.“ Mín skoðun er sú að þá værum við að setja enn frekara hlé á uppbygginguna sem er hér nauðsynleg.
Ég ætla að nota tækifærið og segja að það eru mikil vonbrigði hvernig ríkisvaldið og ríkisstjórnin hafa sinnt uppbyggingu landsins og endurreisn efnahagslífsins, að staðan skuli í raun vera sú að eina verkefnið sem við erum að liðka fyrir sé þetta verkefni — eins umdeilt og það er. Það er að sjálfsögðu mjög sorglegt, frú forseti, að ekki skuli meiri árangur hafa náðst á þessum langa tíma sem liðinn er frá hruninu.
Við verðum líka að horfast í augu við að björninn er ekki unninn þannig að verkefnið skapi störf og uppbygging verði til langframa. Björninn er ekkert unninn þó að Alþingi samþykki að veita iðnaðarráðherra, framkvæmdarvaldinu, heimild til þess að gera þennan samning. Það er í rauninni það sem við erum að gera.
Það eru önnur ljón í veginum fyrir fjárfestingu á Íslandi. Á það hefur verið minnst hér og snýr að skattamálum, ekki síst virðisaukaskattsmálum. Maður veltir því aðeins fyrir sér hvort við eigum að taka þennan erfiða slag sem við erum að gera, slag milli siðferðisvitundar okkar og kannski raunsæis því að nauðsynlegt er að skapa störf og byggja upp landið, meðan við vitum að það eru aðrir hnútar sem á eftir að leysa og framkvæmdarvaldið á eftir að skýra og finna lausn á, eins og í fjármálaráðuneytinu svo dæmi sé tekið.
Gagnaver sem slíkt er einn af mörgum kostum sem við eigum til að byggja hér upp og fjölga störfum. Þetta er orkufrekur iðnaður, eins og hefur komið fram, en við vitum líka frá þeim aðilum sem hafa heimsótt nefndina að það er ekki eingöngu gagnaversaðilarnir sem þetta mun hafa jákvæð áhrif á ef af þessu verður heldur ýmsir aðrir fjárfestar. Það verðum við líka að horfa á.
Ég verð að segja að eftir að hafa vegið og metið kosti og galla og allt sem er búið að fara í gegnum kollinn á mér í þessum pælingum að ég tel skipta miklu máli að af þessu verði. En ég verð að viðurkenna að ég hef líka velt því fyrir mér hvers vegna í ósköpunum þessi umdeildi aðili hefur ekki sagt sig frá verkefninu. Af hverju hefur hann ekki afsalað íslensku þjóðinni hreinlega sínum hlut ef honum er svona annt um að bæta orðspor sitt eða leggja hönd á plóginn við endurreisn íslensks efnahags? Af hverju hefur þessi umdeildi aðili ekki stigið fram og sagt: „Ég ætla að afhenda íslenska ríkinu minn hlut í þessu félagi“? Þrátt fyrir góð orð og yfirlýsingar hans þá er það ekki af þeim sem skoðun mín mótast. Ég bara trúi þeim ekki, því miður.
Ég velti því upp einhvern tímann í nefndinni hvort hægt væri að setja málin í þann farveg að ef umræddur aðili yrði fundinn sekur um eitthvað færi hann sjálfkrafa út úr öllu þessu dæmi. Þá er væntanlega of langt gengið, ef það má orða það þannig, eða spurning hvort við séum þá komin enn lengra út í óvissuna með hlutverk þingsins — ég velti því fyrir mér — en þeir þættir sem ég er að reyna að útskýra eru ástæðan fyrir að ég er með fyrirvara á nefndarálitinu og hvers vegna ég tel mikilvægt að þetta mál fari áfram.
Ég tek að vissu leyti undir þær vangaveltur sem hér hafa verið um tengsl einstakra aðila við Novator, stjórnarformennsku í Verne og allt það. Ég held að full ástæða sé til þess að velta þessu fyrir sér. Ég vil þó fullyrða að þetta hefur engin áhrif haft á störf nefndarinnar.
Frú forseti. Margt er búið að segja og fara yfir, bæði meirihlutaálitið og álit minni hlutans, álit Margrétar Tryggvadóttur. Ég get tekið undir margt af því sem kemur fram í áliti Margrétar Tryggvadóttur í nálgun hennar á þetta mál. Eitt vil ég nefna sérstaklega, það er skortur á löggjöf um gagnaver og ég held að þrátt fyrir aðild okkar að evrópskri löggjöf eða evrópskum tilskipunum eða hvað á að kalla það þá þurfum við að hraða eins og hægt er vinnu við að setja sérstaka löggjöf um gagnaver. Við vitum að einhvern tímann mun hér rísa gagnaver, hvort sem þetta nær fram að ganga eða ekki, og mikilvægt er að hér á landi sé löggjöf sem nær yfir slíkt. Við viljum ekki að einhver óþverri verði vistaður undir íslenskum hatti.
Það eru fleiri spurningar sem hafa farið í gegnum hugann þegar við höfum fjallað um málið. Ég vona að ég hafi náð að útskýra þær blendnu tilfinningar.
Hér er búið að fara yfir ýmsa hluti sem tengjast þessu máli á einn eða annan hátt. Ég vil velta hér upp einhverju sem má gagnrýna okkur í nefndinni fyrir en það er að hafa ýtt málinu svolítið á undan okkur með því að taka ekki af skarið í sambandi við hvað við viljum og viljum ekki. Ég viðurkenni það hreinlega að sá tími sem er liðinn frá því að við fórum að fjalla um þetta hefur einhver áhrif á að nú vil ég að málinu ljúki — ég vil að því ljúki farsællega. Ég vil gjarnan að það verði til gagnaver á Íslandi, það verði til störf við að byggja gagnaver og svo framtíðarstörf við atvinnusköpun og atvinnu í slíku veri. Ég veit að það mun hafa áhrif á aðra sem hingað vilja koma.
Frú forseti. Ég ítreka það sem ég sagði áðan að þetta hefur ekki verið rætt í þingflokki framsóknarmanna með þeim hætti að reynt hafi verið að ná fram sameiginlegri nálgun á þetta málefni og ég á ekki von á að það verði.
Málið liggur nokkuð ljóst fyrir. Nefndarálitin eru tvö. Það er búið að fjalla um þetta í fjölmiðlum og annars staðar. Ef hins vegar koma upp álitamál núna þegar þetta fer til nefndarinnar milli 2. og 3. umr. er að sjálfsögðu eðlilegt að nefndin taki það til umfjöllunar og velti fyrir sér þeim athugasemdum sem hér hafa komið fram ef þær hafa ekki þegar fengið umfjöllun í nefndinni.