138. löggjafarþing — 118. fundur,  6. maí 2010.

heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ.

320. mál
[17:26]
Horfa

Þráinn Bertelsson (U) (andsvar):

Virðulegi forseti. Öll viljum við stuðla að atvinnuuppbyggingu og ekki síst á Suðurnesjum. Ég sé augljóslega að mikil vandamál fylgja því frumvarpi sem hér liggur fyrir. Hv. þingflokksformaður Framsóknarflokksins, Gunnar Bragi Sveinsson, lýsti hér áðan mjög vel angist sinni og vangaveltum út af átökum milli þess sem hann kallaði annars vegar siðfræði og hins vegar raunsæi, sem felst væntanlega í því að siðfræði er góð í teoríunni en ef maður vill vera raunsær þá getur maður ekki verið heiðarlegur lengur.

Hérna hefur nýlega orðið allsherjarhrun efnahagslega. Frumorsök þess hruns er að þjóðin í heild, leidd af leiðtogum sínum, framámönnum í viðskiptalífi, fór í ferðalag inn á mjög grátt svæði siðfræðilega. Um þetta ætla ég ekki að fílósófera í stuttu andsvari.

Mig langar hins vegar til að bera upp tvær spurningar. Sú fyrri er: Hvenær á þjóð að slá af siðfræðilegum kröfum sínum? Við 1 milljón, 100, 1 milljarð, 100 milljarða eða einhverja tiltekna upphæð? (Gripið fram í.)

Hin spurningin er: Ef við viljum ekki sem þjóð taka í höndina á Björgólfi Thor og öðrum þeim sem orsökuðu hrunið hérna á Íslandi er þá í lagi að rétta þeim litlafingurinn?