fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Val Gíslasyni fyrir andsvarið og spurningarnar. Það er rétt að ég benti ekki endilega á leið nema ég gat um að ágætt væri að hafa gagnsæi, að upplýst væri um styrki, þá vissu menn hvaða hagsmuni viðkomandi er að fara með. En ég var aðallega að benda á að þetta frumvarp er engin allsherjarlausn vegna þess að það er heilmargar leiðir fram hjá þessu. Það tekur t.d. ekki til þess, sem ég gat um, hvernig ungt og hæfileikaríkt fólk ætlar að koma sér á framfæri í baráttu við sitjandi þingmenn sem sitja og nota þennan ræðustól alveg fram að kosningum, núna t.d., og sérstaklega ráðherra sem hafa ráðuneytin og ríkisbáknið til að gefa út hvítbækur og annað slíkt rétt fyrir kosningar. Ég benti einmitt á að á þessu eru veilur og frumvarpið er engin allsherjarlausn, alls ekki, langt í frá — ef menn halda það er það mikil draumsýn sem ég held að muni ekki rætast.
Ég taldi mig því hafa farið í gegnum kosti og galla þessa alls en ég er, eins og ég gat um áðan, með á því að menn hafi gagnsæi.