138. löggjafarþing — 123. fundur,  14. maí 2010.

Norræna ráðherranefndin 2009.

458. mál
[17:12]
Horfa

Þuríður Backman (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil í nokkrum orðum þakka hæstv. menntamálaráðherra, samstarfsráðherra okkar í norrænu samstarfi, fyrir skýrsluna sem er ítarleg og góð og sýnir okkur hvað það er mikilvægt að við förum a.m.k. árlega yfir alþjóðlegt og norrænt samstarf og gefum okkur tíma til að átta okkur á stöðu þeirra mála og setja okkur svolítið inn í þau þannig að við tölum í takt. Það sem mér finnst skipta máli varðandi skýrslu sem þessa er að það er svo margt sem unnið er á norrænum vettvangi sem fer hljótt úti í samfélaginu. Gott og mikilvægt starf sem fjölmiðlar veita ekki athygli enda fer þungi starfsins fram í nefndastarfi og á samráðsfundum. Það eru ekki alltaf stórar og miklar ráðstefnur eða yfirlýsingar en þetta er mjög mikilvægt starf og skilar okkur miklu.

Ég tek sem dæmi allt það starf sem fer fram á sviði velferðarmála. Það er ekki bara á þeim vettvangi heldur mörgum öðrum sem við höfum oft á tíðum verið nokkuð á eftir hinum Norðurlöndunum og getum mikið lært af þeim, bæði það sem vel hefur gengið og ekkert síður að horfa á og læra af því sem miður hefur farið. Þannig tökum við ekki upp eða getum forðast einhver kerfi eða breytingar hvað varðar þjónustu, strúktúrbreytingar eða kerfisbreytingar sem hafa ekki gefist vel á öðrum Norðurlöndum. Þó svo eitthvað sé í fræðunum sem beri hæst í það og það skiptið, ef það hefur ekki gengið vel á Norðurlöndunum eigum við svo sannarlega að horfa til þess að þjóðirnar eru svipaðar, menningin er svipuð og við erum jú ekki nema rúmlega 300 þúsund manna þjóð. Núna eigum við og ættum að læra að við getum ekki leyft okkur hvað sem er. Við höfum hvorki þann fjölda né efni á því að haga okkur eins og fjölmennari þjóðir en við getum lært af þeirri stjórnskipan sem þar er og notið þess samstarfs sem Norðurlandaþjóðirnar sinna. Það á sannarlega við í velferðarþjónustunni, bæði félags- og heilbrigðismálum sem hefur borið hingað nýja strauma og eflt starfsemi okkar á mörgum sviðum. Við njótum góðs af samstarfi þjóðanna, m.a. hvað varðar lyfjamál og lyfjaafgreiðslu og bæta réttindi fatlaðra, fólks með fötlun. Auk þess stöndum við saman að því að fara inn í alla lagabálka og endurskoða þá með tilliti til þess að þar gæti jafnréttis gagnvart öllum og að málefni fatlaðra séu sérstaklega skoðuð með tilliti til þess að ekki sé gengið á rétt þeirra. Við eigum enn þá langt í land hvað varðar aðgengi fyrir alla. Innan Norðurlandasamstarfsins er unnið að því að koma á hugmyndafræðinni um aðgengi fyrir alla, hönnun fyrir alla. Þetta höfum við í huga þegar við hugsum um bæði aðgengi í umhverfinu, að fasteignum og aðgengi að lýðræði. Þannig að allir hafi möguleika á þátttöku í pólitísku starfi, eigi möguleika á skólagöngu og samfélaginu í heild. Við stöndum miklu sterkar og betur með því að vera í samstarfi með Norðurlandaþjóðunum. Því vil ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa skýrslu og gera grein fyrir þeim mörgu málaflokkum sem lítið fer fyrir í daglegri umræðu en eru okkur svo mikilvæg.