138. löggjafarþing — 124. fundur,  17. maí 2010.

auðlinda- og orkumál.

[15:25]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég er svolítið hugsi eftir þá umræðu sem hér er búin að eiga sér stað vegna þess að ég man ekki betur en að fyrir réttum tveimur árum hafi verið samþykkt á Alþingi lög um breytingu á lögum um auðlinda- og orkusviðið. Þar lagði hæstv. þáverandi iðnaðarráðherra, núverandi hæstv. utanríkisráðherra, höfuðáherslu á að tryggja einmitt það, og það var í góðu samstarfi við aðra flokka á þinginu, þar á meðal þáverandi samstarfsflokk, að auðlindir okkar á orkusviði yrðu í almannaeigu. Það var gert sérstaklega í þessum lögum þannig að sagt var skýrum orðum að auðlindir ættu að vera í almannaeigu.

Við þetta tækifæri, 28. maí 2008, sagði hæstv. þáverandi iðnaðarráðherra um atkvæðagreiðsluna, með leyfi forseta:

„Hér er um að ræða lagasetningu sem ég tel að sé ein sú mikilvægasta sem rekið hefur á fjörur Alþingis á síðustu árum og ég er ákaflega þakklátur fyrir þá breiðu samstöðu sem hér hefur náðst um ákveðin grundvallaratriði. Það virðist sem þingheimur allur standi einhuga að baki þeirri stefnu sem í frumvarpinu birtist og varðar það að tryggja að orkuauðlindir sem eru nú þegar í samfélagslegri eigu verði það áfram.“

Þá vil ég spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort hann viti af hverju hæstv. fjármálaráðherra er svona önugur yfir þessu öllu saman. Er ekki öruggt að þessi lög eru enn þá í gildi? Þrátt fyrir að hið erlenda félag Magma hafi keypt ráðandi hlut í HS Orku, er það ekki rétt að auðlindin sem að baki liggur, undir liggur í þessu tilfelli, sé hreint og klárt í samfélagslegri eigu, í eigu opinberra aðila, sveitarfélaganna á Suðurnesjum, (Forseti hringir.) þar á meðal Reykjanesbæjar o.fl.? Er það ekki skýrt og klárt að auðlindin er í opinberri eigu?