viðbrögð ríkisstjórnarinnar við afleiðingum eldgosa.
Frú forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir. Ég tek undir það, hugur okkar allra er með því fólki sem mest mæðir á í þessum efnum, að sjálfsögðu fyrst og fremst íbúum svæðisins og öðrum þeim sem þar eru að störfum eða þeim til aðstoðar um leið og það er ánægjulegt að sjá þann samhug og þá miklu hjálp sem birtist í sjálfboðaliðastarfi og öðru slíku. Síðast þegar þetta var tekið saman, sem var fyrir um viku síðan, var áætlað að gera mætti ráð fyrir að áfallinn kostnaður væri að nálgast 400–600 millj. kr. sem af náttúruhamförunum hefur þegar hlotist eða sem gera má ráð fyrir að hafi fallið til allt frá því að gos tók sig upp á Fimmvörðuhálsi. Það verður að sjálfsögðu tryggt að unnt verði að greiða bæði bætur og tjón og standa undir öðrum óumflýjanlegum kostnaði sem er umfram það sem fjárheimildir viðkomandi stofnana og aðila gefa svigrúm til að gera.
Það má líka búast við því, því miður, að eftir því sem gosið dregst á langinn vaxi þessi kostnaður og það verða menn að horfast í augu við. Hversu háar tölur það verða að endingu er ekki gott að segja.
Ég tek undir það að eitt af því sem væri skynsamlegt að gera þegar við lendum í hlutum sem þessum er að fara yfir og skoða hvernig við ætlum bæði nú og síðar að standa að viðlagaundirbúningi hvað varðar fjárhagslega þætti. Við erum með mjög sterka og vel fjármagnaða Viðlagatryggingu sem á um 37 milljarða í sjóðum, ef ég man rétt. Við erum með allöflugan Ofanflóðasjóð sem gegnir tilteknum verkefnum og við erum í þriðja lagi með mjög veikburða Bjargráðasjóð sem ræður við lítið án aðstoðar, sérstaklega eftir að sveitarfélögin fóru út úr honum núna fyrir skemmstu. Þetta umhverfi mætti alveg skoða og hugsanlega mætti samþætta betur á einum öflugum stað allar varnir og allan viðbúnað okkar hvað varðar tjónabætur og fjárhagslegan viðbúnað undir náttúruhamfarir.