afnám gjaldeyrishafta.
Virðulegi forseti. Við hrunið voru sett á gjaldeyrishöft á Íslandi. Var það gert til að koma í veg fyrir snöggt útflæði gjaldeyris. Seðlabankanum var ekki ætlað að fjármagna fjármagnsflótta. Nú hafa þessi höft verið í gildi í nær 20 mánuði og ekkert bólar á afnámi þeirra. Reynsla haftaáranna ætti að vera okkur Íslendingum í fersku minni og það ætti að vera okkur kappsmál að losa höftin áður en þau festa sig varanlega í sessi með allri þeirri spillingu sem þeim fylgir. Gjaldeyrishöftin hafa í för með sér gríðarmikla sóun.
Í morgun var kaupgengi evru á aflandsmarkaði 285 kr. en tæpar 164 kr. í Seðlabankanum. Þetta endurspeglar að við sölu hverrar evru á aflandsmarkaði hagnaðist einhver um 121 kr. ólöglega. Þessi staðreynd er mælikvarði á þá óeðlilegu viðskiptahætti sem þrífast í skjóli haftanna. Þetta er mælikvarði á spillinguna. Þennan kostnað ber almenningur í landinu. Í dag er talið að um 500 milljarðar kr. séu í eigu útlendinga á Íslandi og er það trú sumra að við afnám gjaldeyrishaftanna muni þessir fjármunir streyma úr landi og tæma gjaldeyrisvarasjóði okkar Íslendinga. Því tala margir um að höftin eigi að vera áfram og peningar útlendinga eigi að vera innilokaðir í nokkurs konar nauðungarvinnu fyrir okkur Íslendinga.
Kallar það virkilega á að hefta þurfi alla eðlilega fjármagnsflutninga eins og nú er gert með öllum þeim kostnaði sem því fylgir? Það held ég ekki. Um fimmtungur milljarðanna 500 er bundinn í skuldavafningi í lúxemborgska seðlabankanum. Í nokkurn tíma hafa staðið yfir viðræður um að íslenski seðlabankinn kaupi þennan vafning og sá lúxemborgski fjármagni hann með langtímaláni. Það er í takt við eina af efnahagstillögum okkar sjálfstæðismanna sem kynntar voru í þinginu síðasta haust. Þá eru eftir um 400 milljarðar, að mestu í eigu erlendra fjármálastofnana. Eitthvað af þessum peningum eru „heitir peningar“, eins og kallað er, sem munu strax vilja úr landi við afnám haftanna. Eitthvað af þeim er í arðsömum fjárfestingum eins og til að mynda húsbréfum og ríkisskuldabréfum. Ef menn hræðast fjárflótta við afnám hafta, væri þá ekki betra að takmarka einfaldlega höftin við krónueign erlendra lögaðila á Íslandi? Síðan væri hægt að afnema þau höft á einhverju árabili.
Afnám gjaldeyrishaftanna eru einhver sterkustu skilaboð sem hægt er að senda umheiminum um að hér séu hlutirnir á réttri leið. Það ætti í sjálfu sér að leiða til betri lánskjara og auðveldari aðgangi að lánsfé. Skuldtryggingarálag á fimm ára lán ríkissjóðs er nú 270 punktar og hefur ekki verið lægra síðan fyrir hrun og það er einnig mun lægra en í sumum ríkjum Evrópusambandsins. Þetta álag er vísbending um mat á hlutfallslegri áhættu Íslands miðað við önnur ríki og að það fari snarlækkandi. Þetta er einnig vísbending um að nú er lag að afnema höftin. Af hverju að láta tímann fara til spillis með allri þeirri sóun sem á sér stað í dag? Hvað dvelur orminn langa?