afnám gjaldeyrishafta.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér afnám gjaldeyrishafta. Eins og svo margt annað sem þessi ríkisstjórn hefur tekist á hendur erum við komin í öngstræti eina ferðina enn. Hér fara fram kaup í stórum stíl í aflandskrónum sem eru svo notaðar að því er virðist til þess að fjárfesta aftur í íslensku viðskiptalífi. Talað er um flótta fjárfesta við fall krónunnar sem er ófært, en það er ófært vegna verðtryggingarinnar. Það er það sem menn eru hræddir við, þeir hafa ekki dug í sér til þess að taka á því óþverrafyrirbæri sem verðtryggingin er. Ef verðtryggingin yrði afnumin væri miklu hættuminna að afnema gjaldeyrishöftin.
Það má afnema gjaldeyrishöft með öðrum hætti en fyrir liggur í Seðlabankanum. Það má afnema þau einfaldlega með því að skattleggja í þrepum upphæðirnar sem flytjast úr landi, það er líka ágætisaðferð til að afla tekna fyrir ríkissjóð. Það er fjölmargt annað hægt að gera en það er haldið áfram í sömu förum og fyrir hrun, þ.e. embættismenn í Seðlabankanum ráða ferðinni. Sömu embættismennirnir og komu á því fyrirkomulagi sem hrundi eru nú að reyna að lappa upp á það með sömu gömlu aðferðunum. Seðlabankinn mun áfram reyna að halda niðri innlendri verðbólgu með háu vaxtastigi o.s.frv. þegar gengið er orðið frjálst.
Hvað næst? Það er ekkert næst. Evra, segir Samfylkingin. Jú, jú, gott og vel, dollari eða nýkróna. Það er einfaldlega verið að halda áfram hér með gjaldmiðilsstefnu og efnahagsstefnu án þess að vita hvert verið er að fara og það er kannski það versta í því. Hvað ætla menn að gera? Ætla menn að halda áfram í sama farvegi og fyrir hrun? Það bendir ekki neitt til annars en að það sé stefnan.
Mig langar að spyrja Samfylkinguna: Hvað gerir Samfylkingin til þess að athuga með upptöku annars gjaldmiðils en evru, því að það bendir ýmislegt til þess að þjóðin muni ekki samþykkja aðild að Evrópusambandinu? Er þá ekki vænlegt að skoða einhverjar aðrar leiðir en evru (Forseti hringir.) sem gjaldmiðil? Það er önnur leið og það er óábyrgt að tala niður íslensku krónuna án þess að skoða fleiri möguleika en einn.