afnám gjaldeyrishafta.
Virðulegi forseti. Setning gjaldeyrishafta kemur ekki til af góðu og er nokkuð ljóst að dragist verulega á langinn að aflétta þeim mun það leiða til óhagræðis ýmiss konar og menn munu reyna að komast fram hjá höftunum. Óvarlegt er þó að aflétta þeim á meðan áhrif gjaldeyriskreppunnar og bankahrunsins eru enn til staðar. Við erum að glíma við þau áhrif og um leið koma í veg fyrir að verðbólga og atvinnuleysi festist hér í sessi. Á sama tíma viljum við ná að nýju trausti erlendra aðila, koma á tengslum við erlenda fjármálamarkaði og greiða aðgang ríkisins og fyrirtækja að erlendum lánamörkuðum. Raungengi krónunnar er mun lægra en sögulegt meðaltal segir til um og sennilega á gengið eftir að styrkjast áður en jafnvægi er náð þó að það verði aldrei jafn sterkt og á árinu 2007.
Ef ná hefði átt stöðugleika í gengi án þess að grípa til gjaldeyrishafta hefðum við þurft himinháa vexti og líka meiri gjaldeyrisforða en er til staðar nú og eins þegar höftunum var komið á. Þess vegna er gripið til tímabundinna gjaldeyrishafta og þannig unnið að gengisstöðugleika. Jafnframt er ætlunin með höftunum að mynda skjól fyrir endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja.
Þegar kostir og gallar gjaldeyrishafta eru skoðaðir við núverandi aðstæður þarf að taka mið af samspili vaxta, verðbólgu og gengis og ef vextir lækka hratt eða ef gjaldeyrishöftin verða afnumin er hætta á því að gengi krónunnar falli og skuldir heimila og fyrirtækja í erlendri mynt hækki. Þótt við viljum losna sem fyrst við gjaldeyrishöftin og lækka stýrivexti er nauðsynlegt að fara varlega í þeim efnum á meðan við höfum ekki komið á jafnvægi í efnahagsmálum. Róttækar aðgerðir í átt til afnáms haftanna eða slaki í eftirliti með þeim gæti leitt til enn verri stöðu heimila í landinu og tafið fyrir uppbyggingu atvinnulífsins.