138. löggjafarþing — 124. fundur,  17. maí 2010.

fjármálafyrirtæki.

343. mál
[21:17]
Horfa

Frsm. meiri hluta viðskn. (Lilja Mósesdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og jafnframt mjög gott samstarf í viðskiptanefnd. Þó að það hafi oft og tíðum tekið á er það bara þannig að þegar fólk tekst á um ákveðna hluti verður það oft til þess að opna augu viðkomandi fyrir því sem má bæta og gera betur.

Varðandi þann tíma sem endurskoðandi eða endurskoðunarfyrirtæki má þjónusta ákveðið fjármálafyrirtæki er vissulega rétt að þessi fimm ár eru skot út í loftið. Það hlýtur samt alltaf að vera matsatriði hversu lengi fyrirtæki eða einstaklingar eru að mynda trúnaðarsamband. Markmiðið með því að stytta tímann úr sjö árum í fimm er að reyna að tryggja að ekki myndist trúnaðarsamband á milli þess sem endurskoðar reikninga fyrirtækis og stjórnenda þess. Það kemur einmitt fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að endurskoðendur skrifuðu upp á efnahagsreikninga sem þóttu mjög ótrúverðugir, a.m.k. í ljósi þess sem síðan gerðist hálfu ári seinna. Í ljósi falls bankanna þykir mjög nauðsynlegt að tryggja að ekki myndist þetta trúnaðarsamband sem virtist hafa verið milli endurskoðenda (Forseti hringir.) og fyrirtækja.