138. löggjafarþing — 125. fundur,  18. maí 2010.

störf þingsins.

[13:50]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að taka undir með hv. þm. Magnúsi Orra Schram þegar hann sagði að margir ráðherrar væru til óþurftar. Orð í tíma töluð. Þessi ríkisstjórn verður nefnilega aldrei kennd við nokkuð annað en aðgerðaleysi, aðgerðaleysisríkisstjórnin verða eftirmæli þessarar ríkisstjórnar. Og hugsið ykkur, hún kenndi sig við velferð í upphafi stjórnartímans en 24 þúsund heimili eiga nú í verulegum vandræðum.

Þá komum við að skuldaaðlöguninni, eina úrræði ríkisstjórnarinnar. Hversu margir skyldu hafa nýtt sér það? Ekki einu sinni 300 manns, tæplega 300 manns hafa nýtt sér þessa leið. Þingmenn Samfylkingarinnar koma fram og segja: Við þurfum bara að útskýra þetta betur fyrir þjóðinni. Meira en 40% ungs barnafólks eru á mörkum þess að geta framfleytt sér. Við erum að tala um börn og við erum að tala um ungt fólk.

Hæstv. félagsmálaráðherra hefur oft og tíðum komið fram og sagt: Ég ætla að gera allt fyrir þetta fólk. Hann lofar öllu fögru en það gerist ekki neitt. Af hverju skyldi stríðsyfirlýsing gegn félagsmálatröllinu í félagsmálaráðuneytinu hafa borist frá Hagsmunasamtökum heimilanna? Af hverju skyldi það vera? En það er eitt sem Samfylkingin hefur staðið við, það má hún eiga. Það eru samræðustjórnmálin. Það er að tala upp í eyrað á fólki út um allt land, lofa öllu fögru en gera ekki neitt.