138. löggjafarþing — 125. fundur,  18. maí 2010.

vátryggingastarfsemi.

229. mál
[14:08]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það mál sem við erum að greiða atkvæði um er um margt til bóta og það er búið að liggja ágætlega yfir því. Ég vil hins vegar vekja athygli þingheims á því að við erum ekki að fara eftir þeim ábendingum sem komu fram í rannsóknarnefndarskýrslunni, þ.e. að við tökum nauðsynlega pólitíska stefnumótun í málum eins og þessu. Það á við um fleiri mál sem við ræðum um og greiðum atkvæði um í dag. Það er nokkuð hætt við að sú lagasetning sem við erum að fara í núna muni einkennast af bútasaum í stað þess að við förum heildstætt yfir málið og tökum ákvörðun um það hvernig, í þessu tilfelli, vátryggingamarkað við viljum sjá og hvernig við ætlum að ná þeim leiðum.

Það er líka orðið nokkuð áberandi að við erum farnir að nota mikið hugtök eins og heilbrigður, eðlilegur og traustur. Það eitt og sér er ekki nóg í lagasetningu því að það getur veitt falskt öryggi. Sérstaklega vekur athygli að þrátt fyrir að við séum að færa (Forseti hringir.) til Fjármálaeftirlitsins auknar valdheimildir höfum við ekkert farið yfir það hvernig sú stofnun á að sinna því mikilvæga hlutverki sem við ætlum að fela henni í framtíðinni.