vátryggingastarfsemi.
Frú forseti. Í þessari breytingartillögu við frumvarpið er lagt til að sett verði í 1. gr. mjög skýrt hver sé tilgangur þessara laga. Þó að ég taki undir þau orð sem féllu hjá hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni og raunar varaformanni viðskiptanefndar, Magnúsi Orra Schram, um að það hefði skort á pólitíska stefnumörkun við vinnslu þessa frumvarps tel ég að með því að setja svona skýrt inn tilgang laganna séum við að taka tillit til hluta þeirra athugasemda sem komu fram í rannsóknarnefndarskýrslunni og ábendingum frá hópi sem forsætisráðherra skipaði í framhaldi af því að skýrslan kom út um það hvernig við getum lagfært lagasetningu frá Alþingi. Greinin er svohljóðandi:
„Tilgangur laga þessara er að tryggja að vátryggingafélög séu rekin á heilbrigðan og eðlilegan hátt með hagsmuni vátryggðra, vátryggingataka, hluthafa og alls þjóðarbúsins að leiðarljósi.“ (Forseti hringir.)
Aðrar greinar frumvarpsins eiga að vera túlkaðar út frá 1. gr. Því segi ég já.