138. löggjafarþing — 125. fundur,  18. maí 2010.

vátryggingastarfsemi.

229. mál
[14:16]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S):

Frú forseti. Í 2. gr. er gert ráð fyrir því að vátryggingafélög megi einungis reka á hlutafélagaformi. Ég á erfitt með að sjá hvers vegna í ósköpunum þeir menn og þær konur sem ákveða að fara út í vátryggingastarfsemi megi ekki reka sín fyrirtæki á öðru rekstrar- eða félagsformi. Ég tel að það eigi að vera ákvörðun þeirra sem félögin reka að ákveða rekstrarformið og það sé ekki hlutverk Alþingis að binda rekstur allra vátryggingafélaga í komandi framtíð í það form sem hér er lagt til þó að ég sé auðvitað þeirrar skoðunar að hlutafélagaformið sé mjög heppilegt rekstrarform. En það vekur athygli mína að Vinstri hreyfingin – grænt framboð, sem er hluti af þessari ríkisstjórn, (Forseti hringir.) skuli leggja það til að eina rekstrarformið fyrir vátryggingafélög megi vera hlutafélög.