138. löggjafarþing — 126. fundur,  18. maí 2010.

Bjargráðasjóður og framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.

616. mál
[14:40]
Horfa

Atli Gíslason (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Frumvarp þetta er flutt í einróma samstöðu sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og ég þakka nefndarmönnum fyrir það. Ég vil líka þakka fyrir hraða afgreiðslu málsins, að það sjái fyrir endann á því á svo skömmum tíma og ég þakka þingmönnum fyrir samstöðu með íbúum á hamfarasvæðunum.