fjármálafyrirtæki.
Hæstv. forseti. Ég dreg enga dul á það að í frumvarpinu eru ýmis atriði sem horfa til bóta og ég tel að í breytingartillögum sem komið hafa fram við vinnslu málsins í nefndinni hafi einnig orðið breytingar til bóta. Ég get alveg tekið undir það að mjög mörg þeirra atriða sem þarna eru nefnd eru vissulega nefnd í rannsóknarskýrslunni en ég held að hinir stóru áhættuþættir sem fóru hvað verst með íslenska bankakerfið verði áfram til staðar þrátt fyrir þessar breytingar. Og þó að ég geti alveg skrifað undir það að margt horfi þarna til framfara er frumvarpið ekki slík lausn sem oft er látið í veðri vaka í umræðunni.
En ég ætla að ítreka hina spurninguna af því að nú er ljóst að innan Evrópusambandsins fer fram mikið lagasetningarstarf eða undirbúningur lagasetningar sem mun hafa áhrif á fjármálamarkaði alls staðar á hinu Evrópska efnahagssvæði og Ísland mun með tíð og tíma væntanlega innleiða. Við vitum að það ferli getur tekið allnokkurn tíma, enda er kerfið þar ytra ansi svifaseint eins og hv. þm. Magnús Orri Schram þekkir. Ég velti fyrir mér að hvaða leyti hv. viðskiptanefnd aflaði sér upplýsinga um það hver þróunin væri, hvaða stefna væri tekin varðandi stóra þætti, stórar ákvarðanir, um meginstefnu í þeim efnum. Ég vildi gjarnan að hv. þingmaður, varaformaður nefndarinnar, upplýsti okkur örlítið um þann þátt.