138. löggjafarþing — 126. fundur,  18. maí 2010.

fjármálafyrirtæki.

343. mál
[15:45]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki og í salnum eru hvorki formaður né varaformaður hv. viðskiptanefndar. Má ég biðja virðulegan forseta um að beita sér fyrir því að þau komi í salinn? Ég mun bíða hérna til hliðar á meðan.

(Forseti (ÁÞS): Formaður viðskiptanefndar er í húsi og er reyndar komin í salinn. Hv. varaformaður nefndarinnar er ekki í húsi eins og sakir standa og það verður kannað hvort hann getur komið í þingsal. Forseti mælist til þess að þingmaðurinn haldi áfram ræðu sinni.)

Við ræðum breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Við fall bankanna urðu raddir um endurbætur á regluverki fjármálamarkaða háværar. Margir vilja færa mun meiri völd til eftirlitsaðila og byggja þá skoðun á að fallið hafi verið ónógu eftirliti og losaralegu reglugerðarumhverfi að kenna. Þetta er ekki séríslensk skoðun, enda fer nú um allan heim fram endurskoðun á hlutverki fjármálamarkaða. Mikilvægt er að flýta sér hægt í þessari vinnu. Mikilvægt er að vandað sé til verka og að afleiðingar nýrra laga og reglugerða séu vel ígrundaðar áður en ráðist er í breytingar.

Í nýju áliti Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er varað við því að rasa um ráð fram í þessum efnum. Þannig segir sjóðurinn í lauslegri þýðingu minni, með leyfi forseta:

„Löggjafinn ætti að hafa í huga þann kostnað sem leiðir af óvissu um lagaumhverfi framtíðarinnar þar sem það getur hindrað fjármálastofnanir í útlánaáformum sínum. Löggjafinn ætti einnig að hafa í huga að of hröð þróun reglugerðarumhverfisins án tilhlýðilegrar greiningar á áhrifum breytinganna er varhugaverð.“

Svo mörg voru þau orð.

Eitt af hlutverkum þingmannanefndarinnar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er að skoða löggjöf um fjármálamarkaðinn og koma með tillögur til úrbóta til að tryggja að hörmungarnar frá 2008 endurtaki sig ekki. Því skýtur skökku við að nú nokkrum mánuðum áður en þingmannanefndin skilar af sér meðmælum sínum skuli hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra koma fram með þann bútasaum sem hér er til umræðu. Fljótt á litið virðist þó margt horfa til bóta í þessu frumvarpi, en annað síður. Í meginatriðum virðist eiga að færa FME, þ.e. Fjármálaeftirlitinu, mjög auknar valdheimildir og eftirlitshlutverk. Á stundum eru breytingarnar það miklar að menn virðast hafa gleymt sér við að færa vald um rekstrarlegar ákvarðanir til framkvæmdarvaldsins. Þetta mikla framsal getur heft framþróun á fjármálamarkaði og skert framtíðarsamkeppnisstöðu íslenskra fjármálafyrirtækja.

Jafnframt virðist algjörlega hafa gleymst að ef færa á Fjármálaeftirlitinu svona aukin völd er eðlilegt að um leið sé settur upp einhvers konar kæruvettvangur fyrir þá sem lúta eftirliti Fjármálaeftirlitsins.

Ekki er eðlilegt að ákvarðanir liggi endanlega hjá Fjármálaeftirlitinu í deilumálum sem upp kunna að koma þegar til að mynda er um rekstrarákvarðanir að ræða. Kæruvettvangur sem þessi ætti að bjóða upp á raunhæf og fljótleg úrræði til að sveigjanleikinn sé ekki tekinn úr kerfinu.

Það má heita furðulegt að ekkert sé tekið á eignarhaldi í frumvarpinu, en losaralegar reglur um eignarhald eru sennilega ein af aðalástæðum hrunsins. Til að mynda mætti setja reglur um að tengdir aðilar geti ekki ráðið yfir meira en 10% hlut í fjármálafyrirtæki ef við tökum okkur t.d. Norðmenn til fyrirmyndar. Þá er ekki á neinn hátt tekist á við það álitamál hvort reka eigi hér svokallaða „universal“ banka eða skipta upp viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi. Í því sambandi hefur verið mikil umræða, sérstaklega í Bandaríkjunum, um hvernig megi fara að því. Það er hægt að gera það á svokallaðan neikvæðan hátt eins og gert var í Glass-Steagall lögunum þar sem einfaldlega var bannað að reka saman fjárfestingarbanka og viðskiptabanka en það er líka hægt að gera það, eins og nú er mjög til umræðu í Bandaríkjunum, með reglum sem kenndar eru við Paul Volcker, fyrrverandi seðlabankastjóra Bandaríkjanna, þar sem viðskiptabanka er einfaldlega bannað að vera með eigin viðskipti. Á þann hátt er hægt að halda miðlun, eignastýringu og fyrirtækjaráðgjöf innan fjárfestingarbanka án þess að þau vandamál komi upp sem fylgja því þegar viðskiptabanki og fjárfestingarbanki eru reknir saman.

Þá er jafnframt grundvallarmisskilningur í frumvarpinu á því hlutverki sem stofnunum samfélagsins hefur verið fært með lögum undanfarin ár. Ef við skoðum t.d. 8. gr. kemur fram grundvallarmisskilningur á hlutverki Fjármálaeftirlitsins. Hér er eftirlitinu falið að safna upplýsingum sem ætlað er að varpa ljósi á kerfislæga áhættu. Seðlabanka Íslands er falið með lögum að fylgjast með fjármálastöðugleika og kerfislægri áhættu. Það er ekki í verkahring Fjármálaeftirlitsins. Þess vegna spyr maður: Af hverju ætti Fjármálaeftirlitið að safna upplýsingum um kerfislæga áhættu ef þeir hafa ekkert með það að gera, ef það liggur ekki á þeirra sviði? Hvað um það, neiti aðili að láta upplýsingar í té eða þær eru ófullnægjandi getur Fjármálaeftirlitið fyrirskipað öðrum fjármálafyrirtækjum að veita aðilanum ekki fyrirgreiðslu. Með öðrum orðum getur Fjármálaeftirlitið með þessu heimildarákvæði tekið ákvörðun um að frysta einstök fjármálafyrirtæki á fjármálamarkaði og setja þau samstundis í þrot. Það er fullkomlega óeðlilegt vald sem Fjármálaeftirlitinu er gefið með þessu.

Þessi grein á sennilega rætur að rekja til meðmæla sem Kaarlo Jännari, finnski ráðgjafinn sem var hér við störf, gaf ríkisstjórninni um það að til þess að hafa sem best yfirlit yfir kerfisáhættu væri rétt að Seðlabankinn héldi einhvers konar lánabók fyrir Ísland þar sem allar tengingar væru ljósar. Frumvarpshöfundar hafa hins vegar misskilið þetta eitthvað.

Hvað varðar rekstrarlegar ákvarðanir er Fjármálaeftirlitinu til að mynda falið að hanna kaupaukakerfi, eins og segir í 39. gr. Ljóst er að frumvarpshöfundur eða -höfundar hafa ekki tekið þátt í að búa til kaupaukakerfi þar sem það er ómögulegt að búa til eitt kerfi sem passar öllum. Ekki er hægt að búa til eitt samræmt ríkiskaupaukakerfi. Nær væri að ekki mætti hanna kerfi sem hvetti til áhættuhegðunar starfsmanna, auk þess sem það yrði að vera gagnsætt. Fjármálaeftirlitið ætti fremur að geta gert athugasemdir við kerfi sem hvetur til áhættu. Þá mætti hugsa sér að setja einhvers konar „claw back“ ákvæði í kaupaukasamninga. Þá verður að hafa í huga að kaupaukakerfi tíðkast í flestum atvinnugreinum og óeðlilegt er að setja einhver sérstök takmörk á fjármálakerfi þótt auðvitað verði, eðlis starfseminnar vegna, að huga mjög vel að áhættu, betur en hjá öðrum atvinnugreinum.

Þá eru starfslokasamningar hér takmarkaðir verulega sem er ólíkt því sem gerist í öðrum atvinnugreinum, til að mynda hjá ríkinu. Krafan ætti mun fremur að vera um gagnsæi. Það sem ég hef talið upp hér eru rekstrarlegar ákvarðanir sem eiga heima inni á borðum stjórna fjármálafyrirtækja, ekki í opinberum eftirlitsstofnunum.

Síðan er eitt atriði sem væri gott að fá útskýringu á og ég er viss um að hv. formaður viðskiptanefndar getur útskýrt það fyrir mér. Það er í 41. gr. Þar er kveðið á um núvirðingu skuldbindinga til myndunar eigin fjár, það skuli dregið frá eiginfjárþætti A. Í fyrsta lagi er þetta í mótsögn við alþjóðareikningsskilastaðlana, en reyndar í takt við Basel-tilmælin. Það sem verður sérstaklega áhugavert að sjá er hvað verður um þá samninga sem fjármálaráðuneytið hefur þegar gert undanfarið ef lögin öðlast gildi. Þýðir það þá að hér muni a.m.k. tvö ef ekki þrjú fjármálafyrirtæki fara beint á hausinn, bara við innleiðinguna á þessari grein?

Það er mikilvægt að ég undirstriki varnaðarorðin sem ég hóf ræðu mína á, þ.e. að rasa ekki að neinu þegar reglugerðarumhverfi fjármálamarkaða er breytt. Nær væri að sjá betur alþjóðlega þróun áður en íslenskar reglur eru smíðaðar. Þá held ég að það sé vel við hæfi að þingmannanefndin sem er að störfum og er að skoða rannsóknarskýrsluna leiti aðstoðar einhverra þeirra alþjóðastofnana sem við eigum aðild að, að það verði beðið um allsherjarúttekt á lagaumhverfi fjármálamarkaða og um leið að eftirlitsramminn sem starfað er eftir verði endurskoðaður. Mér detta strax í hug úrbætur sem mundu treysta mjög eftirlitsrammann og koma í veg fyrir hluti eins og gerðist hérna 2008 þegar kerfisáhættan fór úr böndum og eftirlitsaðilar komu ekki auga á það og það er að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið. Þar sem Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með einstökum fjármálastofnunum en Seðlabankinn með heildaráhættunni getur komið upp upplýsingaskortur þar á milli eins og kom í ljós.

Að fengnum tillögum frá alþjóðastofnun sem til þess væri fengin ætti að gjörbreyta lagarammanum um fjármálamarkaðinn til að atburðirnir frá 2008 endurtækju sig vonandi aldrei aftur. Sá bútasaumur sem hér er til umræðu veitir falska öryggiskennd. Það verður áfram hægt að hola bankana að innan. Þessar breytingar breyta engu þar um.