fjármálafyrirtæki.
Frú forseti. Sjálfstæðismenn fara hér mikinn og ræða um nauðsyn þess að tryggja dreift eignarhald á fjármálafyrirtækjum. Tekið er á eignarhaldinu í öðrum lögum en í lögum um fjármálafyrirtæki. Það er gert í lögum um verðbréfaviðskipti, sem eru m.a. til umræðu í viðskiptanefnd. Þar segir að tilboðsskylda hvíli á þeim sem öðlast yfirráð yfir fjármálafyrirtæki sem hefur verðbréf skráð á markaði. Með yfirráðum í skilningi laganna er miðað við 30% atkvæðisréttar.
Þetta ákvæði á ekki við um fjármálafyrirtæki sem fjármagna sig með innlánum, sem eru sparisjóðir. Við í stjórnarmeirihlutanum höfum lagt áherslu á að hér sé til sparisjóðakerfi sem sé með öðrum hætti en önnur fjármálafyrirtæki, kerfi sem að mestu leyti miðar að því að bjóða upp á innlánaþjónustu og fjármagna útlánin með þeim innlánum sem berast inn. Þetta er ekki sambland af fjárfestingarbönkum og viðskiptabönkum, sem hefur verið gagnrýnt, heldur fyrst og fremst viðskiptabankar. Íslenskir neytendur hafa því val um það hvort þeir vilja vera í bönkum sem eru hvort tveggja í senn fjárfestingarbankar og viðskiptabankar eða einungis viðskiptabankar.
Ég vil síðan taka það fram að hvergi í Evrópu er það þannig að þessi starfsemi, fjárfestingarstarfsemin og viðskiptabankastarfsemin, sé aðskilin. Hún er það ekki heldur í Bandaríkjunum, en fyrst og fremst er verið að ræða um nauðsyn þess (Forseti hringir.) að aðskilja þessa starfsemi hjá bönkunum.