sanngirnisbætur.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti allsherjarnefndar um frumvarp til laga um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007.
Með frumvarpinu er mælt fyrir um greiðslu sanngirnisbóta úr ríkissjóði til þeirra sem urðu fyrir varanlegum skaða af illri meðferð eða ofbeldi, bæði andlegu og líkamlegu, á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007, um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn.
Málið á sér ekki hliðstæðu í íslenskri réttarsögu. Helgast það m.a. af því hversu langt er liðið frá þeim atburðum sem bótagrundvöllur frumvarpsins er byggður á. Þær stofnanir og þau vistheimili sem um ræðir eru: vistheimilið Breiðavík, Heyrnleysingjaskólinn, vistheimilið Kumbaravogi, skólaheimilið Bjarg, vistheimilið Reykjahlíð, vistheimilið Silungapolli, heimavistarskólinn Jaðar, Upptökuheimili ríkisins og Unglingaheimili ríkisins. Nefnd sem skipuð var samkvæmt lögum nr. 26/2007 hefur þegar lokið könnun á fjórum af níu vistheimilanna, þ.e. Breiðavík, Heyrnleysingjaskólanum, vistheimilinu Kumbaravogi og skólaheimilinu Bjargi.
Í greinargerð með frumvarpinu er gengið út frá því að dómsmála- og mannréttindaráðherra verði falin framkvæmd laganna. Helgast það annars vegar af því að dómsmála- og mannréttindaráðherra fer með málefni þolenda ofbeldisbrota og að sýslumanni sem heyrir undir hann er falið veigamikið hlutverk. Hins vegar er ekki alveg skýrt í frumvarpinu undir hvaða ráðherra málið heyrir. Því er gerð breytingartillaga þannig að ekki fari á milli mála að framkvæmd laganna heyrir undir dómsmála- og mannréttindaráðherra.
Samkvæmt frumvarpinu er sýslumanni falið, að höfðu samráði við ráðherra, að gera umsækjendum sáttaboð telji hann að bótaskilyrði laganna séu uppfyllt. Ekki er ætlunin að ráðherra fari sérstaklega ofan í einstök mál heldur að hann geti ýtt undir að mál hljóti frekar úrlausn hjá sýslumanni og að samræmis sé gætt á milli mála. Umsækjandi getur hafnað sáttaboði og leitað til úrskurðarnefndar og eru úrskurðir hennar endanlegir á stjórnsýslustigi. Ef umsækjandi er ekki ánægður með úrskurð nefndarinnar verður hann því að leita til dómstóla.
Nefndin telur að með því að fela einu sýslumannsembætti að fara með úrlausn þessara mála sé unnt að tryggja samræmi í sáttaboðum og afgreiðslu mála og leggur því áherslu á að þetta verði eins og getið er um í frumvarpinu að einn og sami sýslumaður fari með þessi mál. Ef málafjöldi verður mjög mikill telur nefndin að efla þurfi það embætti sem fær verkefnið og að ráðherra leiti þá eftir tímabundinni heimild til þess.
Fyrir nefndinni var þeim sjónarmiðum hreyft að rannsóknir vistheimilisnefndar hefðu m.a. byggst á vitnisburði hópa sem bjuggu á vist- og meðferðarheimilum á mismunandi tímabilum og við ólíkar aðstæður. Nefndin telur að við mat á sönnun verði að líta til opinberra gagna og upplýsinga sem liggja fyrir um viðkomandi stofnun eða heimili þess tímabils sem um ræðir, þ.e. á því tímabili sem umsækjandi var á heimilinu svo og framburðar þeirra sem á heimilunum dvöldu á þeim tíma.
Nefndin fjallaði nokkuð um bótagrundvöllinn og telur ekki unnt að fallast á þau sjónarmið sem fram koma í skýringum með 3. gr. frumvarpsins þar sem sagt er að við túlkun á hugtökunum „illri meðferð“ og „ofbeldi“ sé ætlast til að litið verði til þeirra samfélagsviðmiða sem ríkjandi voru á þeim tíma er atvik gerðust eins og hefðbundið er að gera við sakarmat í skaðabótarétti. Og í þessum skýringum segir að enn fremur verði að líta til þess að almenn viðhorf til uppeldis barna hafi breyst umtalsvert á undanförnum áratugum og að ekki sé unnt að fella undir hugtökin „illa meðferð“ eða „ofbeldi“ atriði, sem þrátt fyrir að teljast óásættanleg núna, voru í samræmi við gildandi viðmið á þessum tíma og tíðkuðust víðar. Sama gildi um hugtökin „athafnir“ og „athafnaleysi“ sem voru í samræmi við ríkjandi stefnu stjórnvalda á umræddum tíma. Ég endurtek það að nefndin telur ekki unnt að fallast á þessi sjónarmið enda hafi umsækjandi orðið fyrir varanlegum skaða af þeirri meðferð og vist sem hann var reynd skikkaður í og skipti ekki máli hvort meðferðin hafi verið í samræmi við ríkjandi viðmið þar sem með áskilnaði um „varanlegan skaða“ er fallist á að bótagrundvöllur sé fyrir hendi.
Ljóst er að ábyrgð stjórnvalda af inngripum í friðhelgi einkalífs einstaklinga er mikil og telur nefndin að gera verði kröfu til að lausnir séu faglegar, hvort heldur er vistun eða meðferð. Nefndin telur að illa meðferð barna og unglinga sem hið opinbera tekur að sér verði aldrei hægt að bæta að fullu með fjármunum.
Í 2. mgr. 4. gr. er tekið fram að við ákvörðun fjárhæðar sanngirnisbóta skuli, eftir því sem unnt er, tekið mið af dómaframkvæmd á sambærilegum sviðum. Frumvarpið er því byggt á þeirri viðleitni stjórnvalda að bæta viðkomandi þann varanlega skaða sem hann hefur orðið fyrir vegna þessa þrátt fyrir að mjög langt sé um liðið og að bótaréttur sé fyrndur samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar. Viðleitni stjórnvalda byggist á því að viðkomandi eigi rétt á sanngirnisbótum og að bótunum sé markaður ákveðinn rammi en fjárhæðin getur ekki farið yfir 6 millj. kr. til hvers umsækjanda. Þess vegna er það svolítið tvíbent að segja að ákvörðuð fjárhæð sanngirnisbóta skuli taka mið af dómaframkvæmdum á sambærilegum sviðum því að sambærileg svið eru væntanlega ekki til.
Í 3. og 4. gr. frumvarpsins er fjallað um skilyrði og fjárhæð sanngirnisbóta en skilyrðin eru mjög einstaklingsbundin og því getur greining á þeim verið erfið. Með því að fela sýslumanni að veita umsækjendum sáttaboð er því í reynd slakað mjög mikið á sönnunarkröfum þar sem sýslumanni er gert að bjóða fram sátt telji hann líkur standa til að bótaskilyrði séu uppfyllt. Til að þetta megi vera sem best og tilhlýðilegt fyrir umsækjanda telur nefndin nauðsynlegt að leggja til þá breytingu á 2. mgr. 5. gr. að viðkomandi kröfuhafi geti ekki eingöngu heimilað sýslumanni aðgang að gögnum um sig sem eru í vörslum nefndar samkvæmt lögum nr. 26/2007 heldur þeim gögnum einnig sem eru hjá öðrum stjórnvöldum þar sem þau geta haft áhrif og skipt máli við mat sýslumanns. Hér er sem sagt verið að reyna að stuðla að því að umsækjandi hafi sem greiðasta leið að öllum gögnum sem finna má um hann og mál hans.
Nefndin fjallaði nokkuð um úrskurðarnefndina en þar er kveðið á um að telji umsækjandi ekki unnt að fallast á sáttaboð sýslumanns eða ef kröfu hans er hafnað geti hann leitað til úrskurðarnefndar. Sú málsmeðferð sem úrskurðarnefndin fer eftir er meira íþyngjandi fyrir umsækjanda en sáttaboð sýslumanns og tímafrekari. Nefndin telur því mikilvægt að sáttaboð sýslumanns séu sanngjörn og til þess fallin að leysa sem flest mál eins fljótt og unnt er og reyna þannig að komast hjá því að mál þurfi að fara fyrir úrskurðarnefndina.
Í 11. gr. frumvarpsins er fjallað um erfðarétt en í greininni er sérákvæði um að hafi tjónþoli fallið frá áður en honum var unnt að lýsa kröfu samkvæmt 5. gr. erfist rétturinn til að lýsa kröfu til eftirlifandi barna hans. Þetta er mjög einstakt ákvæði eins og margt annað í þessum lögum. Rökin fyrir þessari heimild eru þau hve langan tíma það hefur tekið fyrir ríkisvaldið að bjóða fram bætur og að margir þeirra sem hafa dvalið á þessum heimilum og hefðu átt bótarétt eru fallnir frá. Nefndin telur í þessu sambandi nauðsynlegt að leggja til breytingu á frumvarpinu þannig að eftirlifandi börn tjónþola sem geta átt kröfurétt geti einnig fengið aðgang að gögnum í vörslu vistheimilisnefndar og annarra stjórnvalda. Það er því gerð breytingartillaga við frumvarpið þar sem þetta er skýrt og ákveðið.
Í 10. gr. er kveðið á um að ráðherra skuli skipa sérstakan tengilið fyrir hvert heimili og hann skal með virkum hætti koma á framfæri upplýsingum til þeirra sem kunna að eiga bótarétt samkvæmt lögunum. Nefndin leggur áherslu á og vill árétta mikilvægi frumkvæðisskyldu þessa tengiliðar.
Fyrir nefndinni komu fram ábendingar um að vistheimilisnefndin hefði við vinnu sína einungis haft úrtak mála, eða einungis um 20% þeirra sem vistaðir voru á Silungapolli, Unglingaheimili ríkisins og Upptökuheimili ríkisins, og um 90% barna á þessum heimilum voru send á vegum barnaverndaryfirvalda í Reykjavík og mál þeirra eru varðveitt hjá Borgarskjalasafni Reykjavíkur en skjöl Unglinga- og Upptökuheimilis ríkisins eru varðveitt á Þjóðskjalasafni Íslands. Nefndin telur því nauðsynlegt að leggja til þá breytingu á 12. gr. frumvarpsins að ráðherra kveði í reglugerð á um aðgang sýslumanns eða úrskurðarnefndar að gögnum hjá sveitarfélögum, stofnunum þeirra og ríkisstofnunum svo að unnt sé að afla þeirra gagna sem nauðsynlegt er til að reka málið.
Nefndin fékk ábendingu um að ekki væri tekið fram í frumvarpinu ef umsækjendur þyrftu túlkaþjónustu. Nefndin tekur fram að það falli undir kostnað við störf tengiliðarins eða störf úrskurðarnefndarinnar og því ekki nauðsynlegt að leggja fram breytingu á frumvarpinu vegna þessa.
Nefndin tekur fram að með samþykkt frumvarpsins er verið að heimila að greiddar verði sanngirnisbætur úr ríkissjóði til fyrrverandi vistmanna meðferðarheimila og stofnana fyrir misgjörðir sem stjórnvöld hafa viðurkennt að bera ábyrgð á þar sem þau fylgdu eftirlitsskyldu sinni ekki eftir gagnvart þeim sem þau sendu til meðferðar á þessi heimili.
Við hljótum öll að harma það sem gerðist á þessum tíma og kom fyrir þessi börn. Nefndin leggur einróma til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar hafa verið fram og ég hef gert grein fyrir.