138. löggjafarþing — 126. fundur,  18. maí 2010.

sanngirnisbætur.

494. mál
[22:44]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Það er ekki ætlun mín að lengja þessa umræðu hér mikið. Ég get tekið undir margt af því og flest það sem komið hefur fram. Ég tek undir með hv. þm. Þór Saari að málið hefur verið í góðum farvegi og góðri vinnu í allsherjarnefnd þar sem verið hefur mikil sátt um þau skref sem stigin hafa verið. Hefur það starf allt verið ánægjulegt og leiðir vonandi til þess að unnt verði að bæta, þótt ekki nema að litlu leyti sé, þann miska og þann skaða sem stór hópur einstaklinga varð fyrir á tiltölulega löngu tímabili á ýmsum heimilum hins opinbera fyrir börn og unglinga. Það er mjög mikilvægt að við tökum þetta skref núna og náum þessum áfanga á brautinni.

Þessum málum hefur nú verið markaður rammi sem skiptir verulega miklu máli, rammi um það hvernig á að meðhöndla mál þeirra sem í hlut eiga og hvernig þeir geta leitað réttar síns, sem er afar mikilvægt. Við gerum okkur auðvitað grein fyrir því, nefndarmenn í allsherjarnefnd, að núna tekur við ferli sem getur verið nokkuð strembið, ekki síst fyrir þá einstaklinga sem vilja leita réttar síns eftir þeim leiðum sem um er að ræða vegna þess að það getur leitt til þess að þeir þurfi að rifja upp sára lífsreynslu og ganga í gegnum ákveðið ferli að því leyti. Það hefur verið reynt að sníða lögin þannig að það ferli sé létt og gert eins aðgengilegt og hægt er. Um að ræða mjög mikilvægan áfanga á þeirri leið sem við sem þing og sem ríkisvald förum núna til þess að reyna að bæta fyrir aðgerðir og framkomu sem við erum öll sammála um að hafi í mjög mörgum tilvikum ekki verið forsvaranleg með nokkrum hætti.

Þetta mun auðvitað leiða til ákveðins álags á kerfið, við gerum okkur grein fyrir því, og það er brugðist við því bæði í frumvarpinu og í nefndaráliti í sambandi við hvernig úrlausn mála á að vera hjá sýslumannsembætti því sem fær þessi mál til meðferðar. Við vekjum athygli á því að það kann að koma til þess að það þurfi að efla það frá því sem fyrstu hugmyndir segja til um. Eins liggur ekki nákvæmlega fyrir hversu mikið álag verður á úrskurðarnefndinni sem fær mál til meðferðar, við höfum við ekki á neinu að byggja hvað það varðar en ég held að það megi ætla að álag á hana verði líka mikið. Við getum því verið viðbúin því að þarna muni falla til allnokkur kostnaður, en eins og allsherjarnefnd gengur frá málinu er mjög mikil sátt um að þetta sé sú leið sem rétt er að fara til þess að bregðast við þeim upplýsingum sem komið hafa fram á síðustu árum um þessi mál. Það er mikilvægt að um það hafi náðst góð pólitísk samstaða.