heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til að gera athugasemd við ummæli hv. þm. Þórs Saaris sérstaklega um það sem lýtur að stjórnarskránni. Þar er alvarlegur misskilningur á ferðinni. Hv. þingmaður lét að því liggja að umræddur hluthafi, Björgólfur Thor Björgólfsson, hefði stjórnarskrárvarinn rétt til þess að njóta ívilnana samkvæmt frumvarpinu. Því fer auðvitað víðs fjarri. Hins vegar fjallar 65. gr. stjórnarskrárinnar um jafnræði og það er niðurstaða óháðra lögmanna, sem iðnaðarráðuneytið kallaði til, að sérákvæði eða einhliða aðgerð stjórnvalda til að mismuna hluthöfum í félaginu Novator mundi fela í sér óeðlilega mismunun og væri því brot á stjórnarskránni ef ekki væri um að ræða samkomulag sem byggist reyndar á frumkvæði nefnds hluthafa í þessu félagi. Stjórnarskráin tengist því ekki ívilnunum sem slíkum heldur því hvort stjórnvöld hafi stöðu til þess að mismuna hluthöfum í einstökum félögum.
Hv. þingmaður talaði um fá störf tengd þessu verkefni. Ég hlýt einnig að mótmæla því. Þarna er, eins og ég nefndi, verið að tala um 500 störf á 25 megavött eða 20 störf á hvert megavatt og ég held að það sé leitun að verkefni sem tengist orkugeiranum þar sem jafnmörg störf skapast á hvert megavatt eins og í þessu verkefni. Ívilnanir af því tagi sem við fjöllum um hér þekkjast í öllum Evrópuríkjum nema hugsanlega í Vatíkaninu þannig að það er afar langsótt að halda því fram að hér séu menn að stíga einhver skref sem eru óeðlileg.