138. löggjafarþing — 126. fundur,  19. maí 2010.

dómstólar.

390. mál
[00:06]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp um dómstóla lítur dagsins ljós vegna þess að trúverðugleiki við skipan dómara á Íslandi var ekki fyrir hendi. Frumvarpið tekur ekki á því trúverðugleikavandamáli, það er froða ein, umbúðir og ekkert innihald. Það er dapurlegt að Ísland skuli ekki eftir þetta hrun vera þess burðugt og Alþingi Íslendinga að koma skikki á það með hvaða hætti dómarar eru skipaðir á Íslandi. Það er enn á valdi geðþóttaákvarðana dómsmálaráðherra hverjir verða skipaðir dómarar. Það er ekki góð vegferð fyrir réttarríki að halda áfram á þeirri braut. Þetta er vont mál.