138. löggjafarþing — 128. fundur,  31. maí 2010.

gagnaver í Reykjanesbæ.

[12:17]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Það er leitt hvað hæstv. fjármálaráðherra virðist vera lítið inni í þessum málum. Ég get upplýst að gagnaverið sem var opnað hér er eitt það umhverfisvænasta í heiminum, knúið af hreinni orku, íslensku veðurfari og hugviti og er komið á eins og ég fór yfir áðan án ríkisstyrkja, ríkisaðstoðar og annarra ívilnana frá íslenska ríkinu. Þess vegna eru þeir samningar sem á að gera hér um gagnaver með sérstakar ríkisívilnanir bannaðir samkvæmt EES-samningnum. Íslenska ríkið brýtur EES-samninginn ef það frumvarp sem nú liggur fyrir þinginu verður keyrt í gegnum 3. umr. og til afgreiðslu. Frumvarpið var komið á dagskrá þingsins fyrir helgi. Það er búið að taka það út af dagskrá þingsins á ný þannig að það væri fróðlegt ef hæstv. fjármálaráðherra mundi svara spurningunni: Er þetta vegna þess að íslenska ríkisstjórnin er að brjóta EES-samninginn með þessu frumvarpi eða er eitthvað nýtt komið fram hjá sérstökum saksóknara (Forseti hringir.) sem veldur því að frumvarpið er ekki komið til umræðu?