138. löggjafarþing — 128. fundur,  31. maí 2010.

aðildarumsókn að ESB.

[12:32]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg):

Virðulegur forseti. Eins og ég sagði áðan greiddi ég atkvæði gegn aðildarumsókn sem sýnir að það var þó ekki algjört flokksræði. Þingsályktunartillagan fór inn í þingið, það er alveg rétt, og þingið tók síðan sína þinglegu afstöðu og samþykkti ályktunina. Hún fékk þá þinglegu meðferð sem slík mál krefjast.

Þeir sem greiddu atkvæði með henni gerðu það á sína ábyrgð og þeir sem greiddu atkvæði gegn gerðu það að sjálfsögðu á sína ábyrgð. Þannig afgreiðir þingið málið og síðan er unnið samkvæmt því þangað til þingið breytir því. Það er þingsins að breyta því ferli sem málið er í. Það getur náttúrlega gert það, hv. þingmaður getur komið með tillögu á morgun og athugað hvort það sé þing… (Gripið fram í.)

Hin þinglega afstaða liggur fyrir, þingið hefur afgreitt málið. Kostnaðurinn er mikill, það er alveg rétt. (Forseti hringir.) Ég veit að það er mikill kostnaður í mínu ráðuneyti, en ég tel alveg fráleitt að breyta hér lögum og reglum (Forseti hringir.) sem lúta beint að aðildinni. Það held ég að enginn vilji fyrr en það er þá búið að afgreiða það hvort við ætlum að (Forseti hringir.) gerast aðilar eða ekki.