Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá efnahags- og skattanefnd um frumvarp til laga um breyting á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins og lögum um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga.
Frumvarp þetta er lagt fram í framhaldi af áliti umboðsmanns Alþingis í máli nr. 5222/2008 þar sem reyndi á hvort aðili, sem hafði vegna fyrri starfa áunnið sér lífeyrisréttindi í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins en greiddi nú iðgjöld í A-deild sjóðsins, gæti samhliða starfi sínu hafið töku lífeyris úr B-deildinni. Í áliti sínu taldi umboðsmaður með vísan til eignarréttarákvæðis stjórnarskrár að fullnægjandi lagastoð hefði ekki verið fyrir hendi eins og atvikum háttaði til í málinu. Aðilinn hefði ekki átt val um að láta iðgjöld vegna starfs síns renna í B-deildina vegna skilyrða 2. mgr. 5. gr. laganna.
Tilgangur frumvarpsins er að skýra og styrkja stoðina undir framkvæmd sjóðsins eins og hún endurspeglast í 54. gr. samþykktanna. Efnahags- og skattanefnd leggur þess vegna áherslu á að ákvæðum frumvarpsins verði ekki frekar en umræddri breytingu beitt afturvirkt.
Við meðferð málsins fór Ríkisendurskoðun þess á leit að lagðar yrðu til breytingar á reglum um kostnað við endurskoðun opinberra lífeyrissjóða. Nefndin tekur ekki afstöðu til þess að svo komnu máli.
Undir nefndarálitið rita Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar, Birkir Jón Jónsson, Lilja Mósesdóttir, varaformaður, Anna Margrét Guðjónsdóttir, Pétur H. Blöndal, með fyrirvara, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Tryggvi Þór Herbertsson, með fyrirvara, Þór Saari og Ögmundur Jónasson.