Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga.
Frú forseti. Ég og hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson skrifum undir þetta nefndarálit með fyrirvara. Það er ekki vegna þess að við séum á móti því að þetta mál nái fram að ganga. Þvert á móti teljum við að þetta sé brýnt mál og þurfi að samþykkjast.
Það sem við höfum við það að athuga er í fyrsta lagi að hér er um að ræða leiðréttingu, þetta er sem sagt galli í lögum og mér finnst að Alþingi eigi helst ekki að samþykkja mörg lög sem eru gölluð, ekki nógu skýr og ekki nógu rökrétt. Síðan er pínulítill möguleiki á því að um sé að ræða afturvirkni á eignarrétti sem er náttúrlega töluvert alvarlegt mál og varðar við stjórnarskrána. Ég tel ekki endilega að svo sé en set sem sagt fyrirvara við þessi tvö atriði, og við báðir.