138. löggjafarþing — 129. fundur,  1. júní 2010.

tilkynning um nýjan þingmann.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, 11. þm. Reykv. n., sagði af sér þingmennsku í gær. Við þingmennskuafsal hennar tekur Mörður Árnason sæti hennar á Alþingi. Kjörbréf Marðar Árnasonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hann hefur ekki tekið sæti á þessu kjörtímabili og er boðinn velkominn til starfa sem alþingismaður.