138. löggjafarþing — 129. fundur,  1. júní 2010.

upplýsingar um eignarhald nýju bankanna.

[14:56]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir þessa beiðni hv. þm. Einars K. Guðfinnssonar og tel mjög mikilvægt í ljósi þess að við fjöllum hér um þetta stórmál, svar ríkisstjórnarinnar við bankahruninu, og erum að fara að greiða um það atkvæði að þær upplýsingar sem hv. þingmaður bað hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra um í fyrirspurn liggi fyrir, sérstaklega núna þegar nefndin tekur málið aftur til skoðunar eftir atkvæðagreiðsluna.

Ég hlýt líka að gera athugasemd við það, frú forseti, að við umræðuna um þessi mál töluðum við stjórnarandstæðingar eins og svo oft vill henda nú upp á síðkastið hver við annan. Hér hefur hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra beinlínis ekki sést. Mér þykir undarlegt að hann skuli ekki einu sinni mæta til atkvæðagreiðslu (Forseti hringir.) um mál sem hann þó sjálfur leggur fram.