fjármálafyrirtæki.
Frú forseti. Ég vil sem formaður viðskiptanefndar þakka nefndarmönnum fyrir ómælda vinnu við að bæta þetta frumvarp um fjármálafyrirtæki. Vinnan hefur staðið frá því í febrúar og nefndin fundað yfirleitt tvisvar í viku. Frumvarpið og breytingartillögurnar fela fyrst og fremst í sér hertar reglur um starfsemi viðskiptabanka og sparisjóða. Vil ég sérstaklega nefna auknar eftirlitsheimildir fyrir Fjármálaeftirlitið og bann við lánveitingum með veði í eigin hlutabréfum.
Ég vil að lokum taka undir þá gagnrýni sem hefur komið fram að of stutt sé gengið í að aðskilja hefðbundna viðskiptabankastarfsemi frá fjárfestingarstarfsemi. Ég hvet til þess að unnið verði að því í sumar og haust að skoða hvað aðrar þjóðir eru að gera til að aðskilja þessa starfsemi. Að lokum vil ég geta þess að sparisjóðirnir eru valkostir fyrir þá sem vilja þennan aðskilnað.