138. löggjafarþing — 129. fundur, 1. júní 2010.
fjármálafyrirtæki.
343. mál
Virðulegi forseti. Við fögnum þessari grein alveg sérstaklega. Þetta er algjörlega í samræmi við það frumvarp sem við fluttum nokkur hér á þinginu sem gerir það að verkum að þau fyrirtæki sem eru tekin yfir af fjármálastofnunum og bönkum þurfi að hlíta sömu upplýsingaskyldu eins og þau væru í Kauphöllinni. Þetta er afskaplega mikilvæg breyting og við fögnum því hversu góð samstaða náðist um þetta í nefndinni.