138. löggjafarþing — 129. fundur,  1. júní 2010.

opinberir háskólar.

579. mál
[16:47]
Horfa

Frsm. minni hluta menntmn. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. formanni menntamálanefndar fyrir andsvarið. Ég vil aðeins benda á og ítreka að hv. þingmenn ættu kannski að kynna sér umsögn Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, þar sem hún fer yfir það með hvaða hætti verið er að takmarka möguleika Háskóla Íslands á að veita endurmenntun. Ég hélt að það væri markmið okkar á hinu háa Alþingi að reyna einmitt að auka möguleika allra til að sækja sér frekari menntun á öllum sviðum og að auka möguleika þeirra sem áttu ekki af einhverjum ástæðum tök á því að sækja sér háskólanám til að gera það samhliða vinnu og að opinberir háskólar geti sinnt því hlutverki. Ég skil ekki og mun kannski aldrei skilja hvað vakir fyrir þeim sem vilja takmarka möguleika fólks til að sækja sér frekari menntun, ekki síst þeirra sem áttu ekki tök á því.

Varðandi skilgreiningu á hlutverki Háskóla Íslands vil ég benda á að einn vandinn sem hefur komið upp og kom upp í aðdraganda hrunsins eru auðvitað hin óeðlilegu tengsl sem geta og hafa myndast á milli háskólasamfélagsins og hagsmunaaðila úti í bæ. Vitna ég þá t.d. í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis því til stuðnings. Það kemur ekki í veg fyrir að háskólaprófessorar og aðrir fræðimenn innan opinberra háskóla og annarra háskóla miðli almenningi af þekkingu sinni með sama hætti og þeir hafa gert og munu gera.