138. löggjafarþing — 129. fundur, 1. júní 2010.
opinberir háskólar.
579. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir svör hans. Ég vil bæta því við að það er ekki svo að verið sé að takmarka aðgengi fólks að menntun. Hins vegar er með þessu frumvarpi verið að koma í veg fyrir það að ríkisháskólar taki aukið gjald fyrir grunnnám. Það er markmiðið með frumvarpinu. Þetta snýst um skólagjöld hjá ríkisháskólum. Önnur breyting á endurmenntun eða annarri starfsemi skólanna fylgir ekki með þessu frumvarpi.