opinberir háskólar.
Frú forseti. Ég hygg að stundum sé betra að vitna í mér lærðari menn og aftur ætla ég að vitna í rektor Háskóla Íslands sem segir í umsögn sinni um frumvarpið, með leyfi forseta:
„Verði frumvarpið að lögum í óbreyttri mynd mun stór hluti endurmenntunar á vegum Háskóla Íslands leggjast af þar sem háskólanum verður ekki heimilt að innheimta námskeiðsgjöld fyrir slíkt nám.“ (OH: Þetta er röng túlkun.)
Þetta er bara ekki röng túlkun. Það er auðvitað svo að ef það er vilji löggjafans að takmarka möguleika opinberra háskóla til að innheimta gjöld fyrir þá endurmenntun sem er í gangi er það líka rangt sem hv. formaður menntamálanefndar segir að það sé ekki verið að takmarka endurmenntun, vegna þess að það segir að opinberum háskólum verði eingöngu heimilt að veita þeim endurmenntun — sem er auðvitað ekkert annað en heiti á símenntun — sem hafa háskólapróf. Það stendur í frumvarpinu sem hér er til afgreiðslu.