138. löggjafarþing — 130. fundur,  1. júní 2010.

tæknifrjóvgun.

495. mál
[19:31]
Horfa

Frsm. heilbrn. (Þuríður Backman) (Vg):

Hæstv. forseti. Hv. heilbrigðisnefnd kom saman á milli 2. og 3. umr. en málið kom aftur til nefndar eftir 3. umr., þar sem umsagnir um málið bárust eftir að nefndin afgreiddi það fyrir 2. umr.

Málið var sent til umsagna 26. apríl 2010 og var frestur til að skila inn umsögnum til 14. maí. Nefndinni bárust umsagnir frá Kvenréttindafélagi Íslands, Mannréttindaskrifstofu Íslands og siðfræðiráði Læknafélags Íslands eftir að umsagnarfrestur rann út. Almennt eru þessar umsagnir jákvæðar en Læknafélagið bendir á að þörf sé á að skoða áhrif þeirra lagabreytinga sem átt hafa sér stað á undanförnum árum með sérstöku tilliti til réttindastöðu og líðanar þeirra barna sem fæðst hafa, áður en lengra er haldið með að bæta rétt fullorðinna til að eignast börn. Í umsögninni segir:

„Þessar breytingar allar eru á þann veg að auka réttindi fullorðinna einstaklinga til að eignast afkvæmi en lítið hefur verið hugað að réttindum þeirra barna sem verða til með þessum hætti. Ekki er heldur að sjá að nokkur skoðun hafi farið fram á áhrifum laganna frá 1996 en þá var í fyrsta sinn lagalega rétt að barn fæddist í heiminn sem hefði ekki nokkurn rétt eða möguleika á að fá að vita um líffræðilegt faðerni sitt en það var fram að því réttur sem var (og er) áskilinn í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna“

Sjónarmið Læknafélagsins krefst ítarlegrar umræðu og telur nefndin eðlilegt að hún verði tekin. Það er hins vegar álit nefndarinnar að með þessu frumvarpi sé verið að jafna stöðu einstaklinga á grundvelli ríkjandi sjónarmiða. Nefndin ítrekar því fyrra álit sitt og telur mikilvægt að frumvarpið nái fram að ganga.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Valgerður Bjarnadóttir og Óli Björn Kárason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita auk þeirrar sem hér stendur hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir, Skúli Helgason, Siv Friðleifsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson.