gjaldeyrismál og tollalög.
Virðulegi forseti. Þetta voru um margt merkilegar upplýsingar sem fram komu í máli hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra. Ég skil það þá rétt að Seðlabankinn hafði ákveðið að lyfta höftum í einhverjum skrefum í einhverri röð, sem mér er ókunnugt um hver er og kannski getur hæstv. efnahagsráðherra upplýst mig um hana. Jafnframt finnst mér ákaflega merkilegt ef ráðherra efnahagsmála hefur ekkert með hagstjórnina í landinu að gera, ef það er seðlabankastjórinn Már Guðmundsson sem ákveður hvenær þetta verður gert og hvernig. Mér finnst merkilegt að hæstv. ráðherra getur ekki gefið skýrari svör um hvenær höftunum verður aflétt.
Við höfum margvarað við því að gjaldeyrishöft kalli á sífellt hertari reglur. Þetta virðist vera liður í því að herða klóna enn frekar á þeim sem haldið er að geri eitthvað misjafnt í skjóli gjaldeyrishaftanna, þótt lögin séu almenn og geti þannig gilt áfram.
Vill hæstv. efnahagsráðherra upplýsa okkur um í hvaða röð á að aflétta gjaldeyrishöftunum, eða veit hann það ekki? Þarf að spyrja seðlabankastjóra Má Guðmundsson um það?