138. löggjafarþing — 130. fundur,  1. júní 2010.

gjaldeyrismál og tollalög.

645. mál
[19:50]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Gylfi Magnússon) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér gætir ákveðins misskilnings af hálfu hv. þingmanns. Þessi áætlun var kynnt opinberlega fyrir alllöngu síðan og birt opinberlega í heild sinni, þannig að hún liggur fyrir í öllum smáatriðum. Ég þarf ekki að koma hingað upp í ræðustól til þess að rekja hana í grundvallaratriðum. Ég skal þó upplýsa hv. þingmann, og spara honum þar með leit á vefnum, sem ætti nú reyndar ekki að vera mjög torsótt, að fyrsta skrefið hefur þegar verið tekið. Það var opnað fyrir innstreymi fjármagns. Skrefin sem lúta að útstreymi fjármagns verða tekin eftir eignaflokkum. Það er nánar tiltekið í þessu plaggi sem ég legg til að hv. þingmaður kynni sér, hafi hann ekki gert það nú þegar.

Forræði þessa máls er vitaskuld hjá ríkisstjórninni og áætlunin var samþykkt af henni. Þetta er því áætlun ríkisstjórnarinnar um hvernig að þessum málum verður staðið, en framkvæmdin er falin Seðlabankanum eins og almennt er með gjaldeyris- og peningamál, eins og hv. þm. þekkir vel.

Því fer fjarri að ég sem ráðherra eða ríkisstjórnin hafi ekkert hlutverk í málinu. Hlutverkið er alveg skýrt. Ábyrgðin er alveg skýr. Seðlabankinn tekur næstu skref. Það er í fullu samráði og samræmi við óskir ríkisstjórnarinnar þar að lútandi.