launamál seðlabankastjóra.
Virðulegi forseti. Mér finnst hv. þm. Sigurði Kára Kristjánssyni fara illa í munni að tala um smjörklípur. Ég verð að segja að það er slæmt að þingið skuli taka, í þeim önnum sem það er, marga klukkutíma í að fjalla um þetta mál sem liggur alveg hreint og klárt fyrir. Þingnefndin fjallaði um það, ekki á einum fundi heldur tveimur fundum, þar sem þeir sem að þessu máli koma hafa nákvæmlega skýrt mál sitt. Það liggur nákvæmlega fyrir að þeir hafa tekið undir allt sem ég hef sagt í þessu efni, það hafa engin fyrirheit verið gefin í þessu máli; ekki af mér, ekki af forsætisráðherra. (SKK: Af hverju að breyta núna sérstaklega?) Það var vegna þess að kjararáð kallaði eftir því að það þyrfti að breyta lögunum og mér sýnist breytingarnar að mestu hafa verið tæknilegar. Ég kom aldrei nálægt þessum breytingartillögum, sá þær fyrst hér í þinginu eins og aðrir. Þetta var fyrst og fremst vegna þess að kjararáð kallaði eftir þeim breytingum. Enda er það svo, ef grannt er skoðað, að breytingarnar sem gerðar voru (Forseti hringir.) af kjararáði, gefa Seðlabankanum ekkert svigrúm til að hækka laun seðlabankastjóra, eins og hv. þingmaður upplýsti áðan. Og það er mjög sérkennilegt hvað hann hefur góðar upplýsingar (Forseti hringir.) úr Seðlabankanum.