samningar við kröfuhafa gamla Landsbankans og innstæðutryggingar.
Virðulegi forseti. Ég verð bara að viðurkenna að minn skilningur á málinu er allt annar en hv. þingmanns. Það kom fram þegar frumvarpið var kynnt að það væri til þess að liðka fyrir framgangi samninga sem tengdust uppgjöri milli gamla og nýja bankans. Ef það kemur þingmanninum á óvart skil ég ekki hvar hann var þegar málið var kynnt.
Það kom einnig fram opinberlega og raunar mjög ítarlega þegar gengið var frá uppgjörinu haustið 2009 að það var gert með ýmsum gjörningum, m.a. ákveðnum kauprétti á hlutafé og því að ákveðnar eignir voru teknar út fyrir sviga. Þetta liggur allt saman fyrir og er opinbert. Ef hv. þingmaður ætlar að búa til eitthvert hneyksli úr því núna að hann hafi ekki verið upplýstur stendur það því eiginlega bara upp á hann að útskýra hvernig þetta fór allt saman framhjá honum.
Hann spurði einnig um frumvarpið um TIF, Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta. Ég verð að viðurkenna að ég tel mjög brýnt að ganga frá því máli, vegna þess að núverandi tryggingarsjóður er ekki mjög burðugur og ef frekari tjón verða mun væntanlega standa upp á hið opinbera að (Forseti hringir.) takast á við það. Ef við værum hins vegar búin að samþykkja lögin um TIF, væri kominn nýr sjóður sem gæti tekist á við tjónið.