hlutafélög, einkahlutafélög og ársreikningar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa yfirferð. Eins og hann nefndi er um að ræða mál sem hefur breiða pólitíska skírskotun, m.a. vísaði hv. þingmaður í að hv. þm. Einar K. Guðfinnsson hefur flutt frumvörp á nokkrum þingum til að styrkja vernd minni hluta. Fyrir því að styrkja vernd minni hluta eru bæði siðferðisleg og hagfræðileg rök. Auðvitað er grundvallaratriði að sá sem á meiri hluta í félagi ráði því en það er hvorki réttlátt né skynsamlegt að hann geti gengið á rétt minni hlutans. Hér er verið að gera tilraun til þess — ekki í fyrsta skipti í íslenskri lagasetningu, ég held að fyrsta skiptið hafi verið árið 1978, ef ég man rétt, og þá með nokkurri einföldun — að takmarka vald meiri hlutans, t.d. til að taka ákvarðanir sem geta hreint og klárt minnkað eign minni hlutans eða verðmæti hans og sömuleiðis hagnað fyrirtækisins.
Kannski er róttækasta breytingin að í ákveðnum tilfellum getur minni hlutinn farið fram á að félagið kaupi út sinn hlut. Um þetta urðu ansi miklar umræður af því að þetta er kannski ekki jafn einfalt og virðist vera. Sumir umsagnaraðilar komu t.d. með þau sjónarmið að þar sem meiri hlutinn væri í rauninni að skaða og skerða virðið í félaginu, og þar af leiðandi skaða minni hluthafa, væri eðlilegt að bætur væru sóttar til viðkomandi eigenda meiri hlutans en ekki í félagið sjálft. Rökin voru einfaldlega þau að eðlilegt væri að sá aðili sem ylli skaðanum, þó svo að sá skaði á félaginu gæti verið hagsmunir fyrir þennan aðila, þ.e. meirihlutaaðilann, þyrfti að greiða fyrir eða bæta skaðann með einhverjum hætti.
Vísað var í norskar fyrirmyndir og þær skoðaðar. Í vinnslu nefndarinnar voru norskir dómar sérstaklega skoðaðir hvað þetta varðar af því að upp kom það sjónarmið að það gæti verið illframkvæmanlegt að fara þá leið að sækja á félagið og kannski ekki réttlátt. Niðurstaðan í örstuttu máli var sú, virðulegi forseti, að þetta virðist hafa gengið þokkalega hjá frændum okkar Norðmönnum og því fara menn þá leið í frumvarpinu. Það er auðvitað eilífðarmál að fylgjast með þróun á þessu sviði en enginn vafi er á því að það er mjög skynsamlegt að leita leiða til að vernda minni hlutann. Mýmörg dæmi eru um það, bæði í einkahlutafélögum og hlutafélögum, að ákvarðanir meiri hlutans hafa orðið til að skaða, ekki bara viðkomandi eiganda minni hluta hlutafjár heldur oftar en ekki í leiðinni verðmæti viðkomandi félags.
Virðulegi forseti. Ég tel að þetta mál hafi fengið góða umfjöllun í nefndinni og umræðan hefur verið góð. Við vitum auðvitað aldrei þegar við göngum frá svona hvort við höfum náð að loka fyrir alla leka og höfum örugglega ekki gert það. Við teljum þó að þetta mál sé til bóta og þess vegna styðjum við það. Einnig teljum við að það sé í anda þess sem við sjálfstæðismenn höfum flutt áður. Ég hef sjálfur verið meðflutningsmaður á þeim frumvörpum sem hv. þm. Einar K. Guðfinnsson hefur lagt fram hvað varðar þessi mál. Svo sannarlega hefur maður séð ýmis dæmi þess að hagsmunir minni hluta hafa verið stórlega fyrir borð bornir og heyrt ýmsar sögur af því að fólk hafi misst stóran hluta eigna sinna og jafnvel aleiguna þegar þannig hefur verið gengið fram.
Virðulegi forseti. Ég vonast til að við séum að stíga skref til að bæta fyrirtækjamenninguna og efnahagsumhverfið í landinu og ég lýsi því yfir að við munum styðja þetta mál.