138. löggjafarþing — 133. fundur,  8. júní 2010.

fjárhagsstaða heimilanna.

[15:10]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Eitt af mikilvægustu markmiðum ríkisstjórnarinnar hefur frá upphafi verið að tryggja að heimilin í landinu komist í gegnum tímabundna en mikla erfiðleika sem hrun bankakerfisins og skipbrot frjálshyggjunnar kallaði yfir þjóðina. Það er rétt sem fram hefur komið að samkvæmt útreikningum Seðlabankans gætu 23% heimila verið í fjárhagsvanda þegar aðeins hefur verið tekið tillit til almennra aðgerða stjórnvalda vegna skuldamála. Það fer auðvitað enginn í grafgötur með það að vandinn er víðtækur og alvarlegur en í því sambandi er afar mikilvægt að hafa líka í huga að greining Seðlabankans tekur ekki tillit til þeirra fjölmörgu sértæku úrræða sem þegar hafa komið til framkvæmda eða bíða afgreiðslu Alþingis. Útreikningar Seðlabankans gefa því ekki nema takmarkaða mynd af stöðu mála. Þessar tölur eiga hins vegar ekki að koma mönnum alveg á óvart. Skuldsetning íslenskra heimila var orðin mjög mikil fyrir bankahrunið en þá áttu um 20% heimila í sambærilegum erfiðleikum, samanborið við 23% nú.

Mikilvægt er að gera sér grein fyrir þeirri staðreynd að vandi heimilanna varð ekki til við hrunið. Vandinn varð að stórum hluta til á árunum á undan og fjöldi heimila var þegar kominn í það veika stöðu að þau þoldu ekki áföll, enda jukust skuldir heimilanna í hlutfalli við ráðstöfunartekjur, úr 178% árið 2000 í um 250% haustið 2008. Frá þeim tíma hefur gjaldmiðillinn hrunið, verðbólgan dregið úr kaupmætti og hækkað lán, þúsundir einstaklinga misst vinnuna og efnahagsleg staða og lífskjör dregist verulega saman hjá flestum landsmönnum. En útreikningar Seðlabankans benda einnig til þess að þrátt fyrir þessar fordæmalausu efnahagshamfarir hefur ríkisstjórninni með þeim boðuðu aðgerðum sem nú bíða afgreiðslu meðal annars og þeim sem þegar hafa verið teknar, tekist að mæta verulegum hluta þess vanda sem hrunið olli skuldsettum heimilum. Reynist það niðurstaðan er það órækur vitnisburður um góðan árangur ríkisstjórnarinnar í þessum málum.

Á það skal hins vegar engin dul dregin að staða heimilanna verður eftir sem áður erfið, enda höfum við öll þurft að sætta okkur við lækkandi kaupmátt ráðstöfunartekna og tilheyrandi lífskjaraskerðingu og sú kjaraskerðing bitnar eðli málsins samkvæmt harðast á þeim sem hafa lítið svigrúm. Ástæða er til að hafa af því verulegar áhyggjur, jafnvel þó að aðgerðir í skattamálum, hækkun barna- og vaxtabóta og ýmislegt annað í aðgerðum ríkisstjórnarinnar hafi sérstaklega verið útfært með þennan hóp í huga.

Það eru einkum þrjár aðgerðir sem helst hafa gagnast þeim sem eru í miklum skuldum. Í fyrsta lagi hefur greiðslujöfnun verðtryggðra og gengistryggðra lána verið komið á en hún lækkar greiðslubyrði verðtryggðra lána um 20% og gengistryggðra lána um 25–40%. Þrjú ár munu að hámarki bætast við lánstímann. Það sem út af stendur mun verða afskrifað.

Í öðru lagi hafa vaxtabætur verið hækkaðar umtalsvert frá efnahagshruninu en sú breyting hefur komið fjölskyldum með lágar og millitekjur mjög til góða. Það bendir t.d. úttekt Seðlabankans á að ekki er tekið tillit til þessarar hækkunar þegar lagt er mat á hversu margar fjölskyldur hafa komist réttu megin við strikið í kjölfar aðgerða stjórnvalda og það munar verulega um þær aðgerðir sem þó eru ekki teknar með í þessari úttekt.

Í þriðja lagi er frumvarp félags- og tryggingamálaráðherra um lækkun bílalána nú til umræðu í efnahags- og skattanefnd þingsins. Í skýrslu Seðlabankans kemur skýrt fram að skuldsetning heimila í greiðsluerfiðleikum vegna bílakaupa eiga stóran hlut í því að skapa þann vanda sem þau eiga við að etja. Þannig bera þau 22% heimila sem eiga í alvarlegum greiðsluvanda 42% af heildarbílaskuldum íslenskra heimila.

Vandi heimilanna er hins vegar margbrotnari en svo að hann verði aðeins leystur með skuldavandaúrræðum. Kjaraskerðingin sem hrunið olli, m.a. sem gengishrun, verðbólga og atvinnuleysi hafa kallað yfir samfélagið, verður ekki unnin til baka nema með endurreisn á efnahag þjóðarinnar. Þar miðar okkur í rétta átt.

Í nýjustu spá OECD, sem birtist í lok síðasta mánaðar, kemur skýrt fram að sá góði árangur sem náðst hefur í efnahagsstjórn á Íslandi undanfarin missiri skapi góðan grunn fyrir efnahagsbata á seinni hluta ársins 2010. Og líkt og Seðlabankinn gerir OECD ráð fyrir samdrætti í ár upp á 2,2% en 2,3 % hagvexti á næsta ári. Gangi þetta eftir verður vöxturinn á Íslandi orðinn sambærilegur við OECD-löndin í heild strax á næsta ári.

Styrking krónunnar á síðustu mánuðum er einnig mikilvæg vísbending um þann árangur sem náðst hefur, en frá áramótum hefur krónan styrkst um 10% og flest bendir til þess að sú þróun haldi áfram næstu missirin.

Annað mikilvægt atriði í batanum er að verulega hefur dregið úr verðbólgunni, en þegar ríkisstjórnin tók við mældist verðbólgan hér á landi 18,6% en hún er í dag 7,5% og hefur ekki verið lægri í um tvö ár. Spá Seðlabankans gerir síðan ráð fyrir að verðbólgan innan ársins verði um 3,5% á þessu ári en um 2% á því næsta. Vextir hafa þróast þannig að stýrivextir voru 18% fyrir rúmu ári en eru nú 8,5%. Gangi þessi spá Seðlabankans eftir yrði það lægsta verðbólga og lægstu vextir sem við Íslendingar höfum séð undanfarin 6–7 ár. Þessi þróun er gríðarlega mikilvæg fyrir heimilin í landinu, enda er hún forsenda þess að lánin hætti að þenjast út og kaupmáttur að rýrna.

Allt mun þetta vinna með okkur í því að efla atvinnulífið og vinna enn frekar gegn atvinnuleysinu. Staðan á atvinnuleysinu er auðvitað áhyggjuefni eins og málshefjandi kom inn á. Atvinnuleysið hefur haldist milli 8 og 9% síðustu mánuði en ekki hækkað þó eins og spár höfðu gert ráð fyrir, en yfir sumartímann mun draga töluvert úr því. Atvinnuleysi lækkar hins vegar ekki að öllu jöfnu fyrr en um hálfu ári eftir að hagvöxtur hefur hafist á ný og ólíklegt er því að atvinnuleysi lækki að marki fyrr en um mitt ár 2011 nema vegna árstíðabundinna sveiflna, og í þessum efnum erum við hins vegar á svipuðu róli og önnur OECD-löndin.

Virðulegi forseti. Sé hlutfall heimila í greiðsluvanda skoðað í samhengi við stöðuna í janúar 2008, um níu mánuðum fyrir hrun, sést vel hverju almennar aðgerðir stjórnvalda hafa þegar áorkað. Samkvæmt tölum Seðlabankans voru um 20% heimila í greiðsluvanda í janúar 2008 þegar svokallað góðæri var enn í hámarki, en þessi heimili eru nú 22% eða 2% fleiri en voru þegar hrunflokkarnir töldu allt leika í lyndi.

Almennar aðgerðir stjórnvalda í skuldamálum heimilanna hafa náð að vega upp að miklu leyti hrun heils hagkerfis á mjög skömmum tíma þar sem atvinnuleysi hefur tífaldast, verðlag hækkað um 20–35% og gjaldmiðill lækkað um 50%, og eru á alla mælikvarða ágætur árangur þótt betur megi ef duga skal. Það skiptir líka miklu máli að ná fram þeim úrræðum sem nú bíða í þinginu. Í þeim efnum er afar mikilvægt að frumvörp um umboðsmann skuldara, greiðsluaðlögun og lækkun bílalána fái skjóta og góða afgreiðslu Alþingis. Ég treysti á samstöðu þingmanna til að ná fram þeim mikilvægu málum áður en gert verður hlé á störfum þingsins.