138. löggjafarþing — 133. fundur,  8. júní 2010.

fjárhagsstaða heimilanna.

[15:38]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Virðulegur forseti. Við ræðum afleiðingar aðgerða ríkisstjórnarinnar í málefnum heimilanna. Þær koma skýrt fram í þessari grein hér, m.a. í Pressunni og skýrslu Seðlabankans. Þær eiga rætur sínar í þessu blessaða frumvarpsdæmi sem var samþykkt með þvílíku hraði hér síðastliðið haust að ekki stóð steinn yfir steini. Frumvarp til laga um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins. Frumvarp sem félags- og tryggingamálanefnd brást skyldu sinni algjörlega með því að afgreiða það. Frumvarp sem tók ekki tillit til athugasemda sem fram komu í því. Það var keyrt með hraði í gegnum þingið. Ósk um vandaðri meðferð var hafnað af nefndinni. Það líður mér aldrei úr minni þegar ég óskaði eftir því að málið færi aftur til nefndarinnar milli 2. og 3. umr. til þess að fá vandaðri umfjöllun þá gerði forseti þingsins þáverandi, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, hlé á þingfundi í hálftíma. Þá stóð þáverandi formaður félags- og tryggingamálanefndar upp fyrir þingsal og sagði: „Það tekur nú ekki nema fimm mínútur að afgreiða þetta.“ Svo var fundað hér eins og hænur á priki undir stiganum. Vegna þessa — vegna þessa — eru heimilin í þeim vanda sem þau eru í í dag. Vegna þessa.

Þetta frumvarp sem var samþykkt síðastliðið haust hefur valdið meira tjóni en gert gagn. Nú ætlar félags- og tryggingamálanefnd og félagsmálaráðherra að gera eitthvað til að bæta málið. Það er bara of seint. Líftími þessa fólks á þingi er útrunninn og líftími þessarar ríkisstjórnar er útrunninn hvað varðar vanda heimilanna. Hún ræður ekki við vandamálið, það hefur einfaldlega sýnt sig. Það vantar almenna, réttláta og sanngjarna lausn fyrir heimilin. Sú almenna, réttláta og sanngjarna lausn felst í almennum niðurfærslum á höfuðstóli lána. Þetta vita allir en Samfylkingin getur ekki stigið það skref einhverra hluta vegna.

Það var jafnframt hlálegt að hlusta áðan á hv. þm. Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur vitna í fyrirspurn sína til efnahags- og viðskiptaráðherra um kostnað ríkissjóðs af niðurfærslu skulda heimilanna þar sem fram kemur að ríkissjóður muni bera 125 milljarða kr. kostnað af slíkri aðgerð. Í öllum þeim tillögum sem fram hafa verið settar um almenna niðurfærslu höfuðstóls kemur hvergi fram að ríkissjóður muni bera nokkurt tjón. Þessi fyrirspurn hv. þingmanns og svar efnahags- og viðskiptaráðherra var leikrit sem var sett á svið til að blekkja almenning og til þess að viðhalda þeirri þráhyggju Samfylkingarinnar að koma ekki heimilum landsins til hjálpar. Þetta er hluti af því leikriti sem Samfylkingin hefur leikið hér í hálft annað ár. Ég geri mér enga grein fyrir því hvers vegna það er — enga — en það er ekki í þágu almennings sem þessi ríkisstjórn starfar. Það er í þágu einhvers annars, einhverra duldra hugmynda um áframhaldandi völd til æviloka sennilega, en ekki í þágu almennings.