138. löggjafarþing — 133. fundur,  8. júní 2010.

framhald umræðu um stjórnlagaþing.

[15:51]
Horfa

Forseti (Árni Þór Sigurðsson):

Forseti vekur athygli á því að fjölmörg mál eru til umræðu á dagskrá fundarins og það er reiknað með því að þingmenn sem vilja taka þátt í umræðum um þau séu viðstaddir umræðuna þegar hún fer fram.