aðildarumsókn Íslands að ESB.
Hæstv. forseti. Að öllu óbreyttu verða þáttaskil í umræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu í þessum mánuði. Taki Alþingi Íslendinga ekki ákvörðun um að draga umsóknina að Evrópusambandinu til baka fyrir 17. júní verður væntanlega tekin ákvörðun um það þann dag þar úti að hefja viðræður við Ísland.
Við þekkjum öll forsögu þessa máls sem bar hvað hæst þegar það fór í gegnum þingið. Við þekkjum það að ýmsir stjórnarþingmenn tóku þá afstöðu með þessu máli Samfylkingarinnar þrátt fyrir að stefna annars stjórnarflokksins, Vinstri grænna, hafi verið skýr gegn því að Ísland færi inn í Evrópusambandið. Það hefur komið fram að það treystir sér varla nokkur maður í ríkisstjórninni til að bera pólitíska ábyrgð á þessu máli. Hæstv. utanríkisráðherra hefur sagt að þingið beri ábyrgðina en það kemur fram í máli hans að ríkisstjórnin hafi ekkert með þetta að gera.
Það eru breyttar forsendur í málinu. Evrusvæðið á mjög undir högg að sækja þannig að það er algerlega ljóst að þau rök aðildarsinna að ganga verði í Evrópusambandið til að tryggja efnahagslegan stöðugleika á Íslandi eru fallin. Þá hafa aðildarsinnar líka sagt að upptaka evru mundi þýða litla verðbólgu og lága vexti. Dæmin frá Evrópu segja okkur að það sé ekki rétt. Viðbrögð Evrópusambandsríkjanna við þeirri upplausn sem blasir við í efnahagsmálum aðildarríkjanna er að reyna að auka miðstýringu frá Brussel og þess vegna verða spurningarnar varðandi fullveldi Íslands enn sterkari. Mig langar því að beina þeirri spurningu til hæstv. fjármálaráðherra hversu mikið afsal fullveldis Íslendinga verði með Evrópusambandsaðild. Er það ekki ljóst af hálfu ríkisstjórnarinnar að það er ekki smekklegt að ákvörðun verði tekin í þessu máli þar úti á þjóðhátíðardegi Íslendinga? Er það ekki algerlega ljóst að ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir því að sú ákvörðun verði ekki tekin þann dag okkur öllum til niðurlægingar?