138. löggjafarþing — 134. fundur,  9. júní 2010.

staða sparifjáreigenda.

[10:57]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Gylfi Magnússon):

Frú forseti. Ég verð greinilega að tala hratt því að margar spurningar voru bornar fram og ég hef tvær mínútur til að svara þeim.

Kannski fyrst þetta: Nú háttar svo til að sparnaður á Íslandi stendur undir öllum fjárfestingum og er það í og með vegna þess að fjárfestingar hafa dregist mjög saman. Landið er því sjálfbært í þeim skilningi að við þurfum ekki að sækja okkur ný lán frá útlöndum. Það þýðir jafnframt að innlendur sparnaður, sem er reyndar fyrst og fremst í gegnum lífeyriskerfið en einnig frjáls sparnaður, rennur til þess að fjármagna þá geira hagkerfisins sem þurfa á fjármagni að halda. Það er ríkisgeirinn, það er alveg rétt hjá hv. þingmanni og það eru þær fjárfestingar sem þó eru í gangi. Þetta er nokkurn veginn staðan þannig að íslenskt sparifé fer í að fjármagna bæði hallarekstur ríkis og eftir atvikum sveitarfélaga og þær fjárfestingar sem þó eru í gangi.

Það er jafnframt rétt hjá hv. þingmanni að raunvextir á mörgum tegundum bankareikninga eru lágir eða jafnvel neikvæðir. Reyndar er hægt að festa fé í bönkum á jákvæðum raunvöxtum ef menn kjósa að setja fé inn á verðtryggða reikninga en þeir eru þá bundnir til minnst þriggja ára. En reikningar sem eru óbundnir eða bundnir til skemmri tíma en það og eru með nafnvexti, þeir eru margir hverjir með nafnvexti undir verðbólgustigi. Það er að vissu leyti áhyggjuefni. Það er áhyggjuefni að fólk skuli ekki vilja fjárfesta annars staðar en í bankakerfinu eða í ríkisbréfum og það er eitt af því sem við þurfum að laga til að fjármagn streymi aftur um æðar hagkerfisins og leiti þar m.a. til frekari fjárfestinga.