störf skilanefnda bankanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. málshefjanda, Vigdísi Hauksdóttur, fyrir að hefja þessa brýnu og nauðsynlegu umræðu. Vegna þeirra sérstöku aðstæðna og til að tryggja á sem skemmstum tíma sem besta yfirsýn yfir hag bankanna þótti rétt að í skilanefndunum væru starfsmenn sem þekktu vel til starfsemi og eignasafns þeirra, en meginverkefni nefndanna var og er að tryggja umsjón með meðferð eigna og að hámarka verðmæti þeirra. Þetta kemur beint frá Fjármálaeftirlitinu sjálfu en það stofnaði skilanefndirnar nokkrum klukkustundum eftir að lög nr. 125/2008 voru sett.
Ég held að engum dyljist að þeir sem sitja í skilanefndunum í dag eru einhverjir valdamestu menn landsins. Ég verð að viðurkenna að ég varð fyrir þó nokkrum vonbrigðum með svar hæstv. viðskiptaráðherra. Mér fannst hann hvorki koma nægilega vel inn á né svara þeim vangaveltum sem málshefjandi beindi til hans um það hverjir bæru í rauninni ábyrgð á þessum skilanefndum. Hann sagði orðrétt að það þyrfti að „fylgjast vel með því að þar [væri] vel staðið að verki“.
Ég beini spurningu til hæstv. viðskiptaráðherra: Hver ber ábyrgð á skilanefndunum sjálfum? Það er ekki Fjármálaeftirlitið. Fjármálaeftirlitið hefur ekki boðvald yfir þeim þótt það hafi vissulega eftirlitshlutverk. Þessar raddir heyrast innan úr skilanefndunum sjálfum. Í rauninni má segja, eins og kom fram áðan, að hér sé um að ræða ríki í ríkinu. Ég beini því til stjórnvalda, núverandi ríkisstjórnar, að taka á þessum málum (Forseti hringir.) þannig að í stað þess að algjört ógegnsæi ríki um vinnubrögð skilanefnda komi allt upp (Forseti hringir.) á borðið.