138. löggjafarþing — 134. fundur,  9. júní 2010.

bygging nýs Landspítala við Hringbraut.

548. mál
[22:27]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Höskuldur Þórhallsson) (F):

Virðulegi forseti. Hér erum við kl. hálfellefu að kvöldi að ræða einhverja mestu framkvæmd Íslandssögunnar. Mér þykir það miður. Ég hefði viljað að þetta mál væri rætt að degi til þegar salurinn væri betur skipaður, þ.e. fleiri í honum. Hér er afar góðmennt, (Gripið fram í: Það er aðalhópurinn sem hér er.) aðalhópurinn er sagt, og ég get tekið undir það.

Framsóknarflokkurinn á sér forsögu í þessu máli vegna þess að eftir því sem ég best veit kviknaði þessi hugmynd í tíð Ingibjargar Pálmadóttur, þáverandi heilbrigðisráðherra Framsóknarflokksins. Jón Kristjánsson sem tók við fylgdi málinu eftir og seinna hv. þm. Siv Friðleifsdóttir. Það er ágætt að geta þess að þegar heilbrigðiskerfið var tekið út eftir þennan langa valdatíma Framsóknarflokksins taldi OECD að íslenska heilbrigðiskerfið væri með besta móti og þeir tóku meira að segja svo djúpt í árinni að segja að það væri lofsvert. Það er arfleifð þessara ágætu ráðherra. Ég óttast hins vegar, jafnvel þótt ég sé fylgjandi því að það þurfi að byggja við og bæta Landspítalann — að mínu mati er ekki hægt að gera ekki neitt, eins og segir í auglýsingunni — þá tel ég einfaldlega að tímasetningin sé afar vond.

Hér varð efnahagshrun, bankarnir hrundu og ríkissjóður er gríðarlega skuldsettur. Ég vil taka undir með hv. þm. Pétri Blöndal sem benti á að kostnaðurinn hlyti með einum eða öðrum hætti að lenda á ríkissjóði. Ég bendi á það í nefndaráliti, sem ég ætla að reyna að skauta yfir á eftir, að ég finn engin rök fyrir því að lífeyrissjóðir láni einkafyrirtæki, eða þeim aðila sem tekur að sér að byggja verkið og leigja svo íslenska ríkinu, án þess að einhvers konar ríkisábyrgð sé þar á bak við. Það getur ekki staðist og ég trúi ekki að lífeyrissjóðirnir, jafnvel þótt þeir hafi skrifað undir viljayfirlýsingu í þá veru, sætti sig við að lána einhverjum einkaaðila fyrir verkefninu til næstu 40 ára. Jafnvel þótt menn segi hér að ríkissjóður sé ekki að taka nein lán held ég að við gerum það með óbeinum hætti.

Það sem ég óttast líka, svo ég tali aðeins almennt um þetta, er að fólk átti sig ekki á því að til að ná fram þessari hagræðingu, 2,7 milljarða sparnaði á ári í 40 ár, þarf að segja upp starfsfólki. Ég tel að það þurfi að segja upp gríðarlegum fjölda af starfsfólki til að ná fram þessari hagræðingu, sérstaklega í ljósi þess að 75% alls kostnaðar Landspítalans eru einmitt launakostnaður. Ég hef einnig áhyggjur af því að það vantar algerlega í gögn málsins mat á því hvernig eða hvort þessi stóra bygging kemur til með að hafa áhrif á heilbrigðisþjónustu úti um allt land. Það hefur gleymst í ferlinu að gera kostnaðarábatagreiningu sem tekur til alls landsins. Fullyrt hefur verið að þetta muni ekki breyta neinu varðandi t.d. kragasjúkrahúsin en þegar við verðum komin með jafnstóra byggingu og stefnir í, sem verður búin nýtískutækjum og flottustu skurðstofum, verður þá ekki gerð sú krafa að eitthvað af þjónustunni sem nú er t.d. í kragasjúkrahúsunum verði færð þangað inn? Ég held að það hljóti einfaldlega að vera. Þetta er sagt á tímum þar sem skurðstofur standa jafnvel auðar og við erum að skera niður. Við höfum skorið niður um 250 millj. kr. Getur verið að arðsemiskrafan sem gerð er sé fallin? Ég ætla að renna yfir þetta á eftir.

Ég vil taka fram að fulltrúi Framsóknarflokksins bókaði í fundargerð að framsóknarmenn eru fylgjandi byggingu nýs Landspítala, líkt og samþykkt hefur verið á flokksþingi. Að sjálfsögðu var þessi samþykkt á flokksþinginu gerð með þeim fyrirvara að ríkissjóður hefði efni á framkvæmdinni og að hún væri hagkvæm og skynsamleg. Auðvitað var gert ráð fyrir því að farið væri yfir allar forsendur frá A til Ö og það er það sem ég gagnrýni hvað helst í þessu nefndaráliti því ég tel að það hafi ekki verið gert.

Hv. þm. Guðbjartur Hannesson lýsti áðan í ræðu sinni, ef ég náði því rétt sem hann sagði, að það hefði verið mat norsku fyrirtækjanna Momentum og Hospitalitet að kanna einungis þrjá þætti. Það hafi sem sagt verið ákvörðun þeirra að kanna þessa þrjá þætti, ég skildi það þannig. Ef það er ekki rétt óska ég eftir að það verði leiðrétt. Það er nefnilega þannig að Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítalans, óskaði eftir því að norsku hönnunar- og ráðgjafarfyrirtækin Momentum Arkitekter AS og Hospitalitet AS yrðu ráðin til að fara yfir áætlanir og hönnunarforsendur vegna nýs háskólasjúkrahúss og skila skýrslu um niðurstöður sínar. Ég held að við munum fallast á að Hulda Gunnlaugsdóttir sé ekki hlutlaus aðili þegar kemur að þessu efni en hún valdi ráðgjafarfyrirtækin og fól þeim að fara yfir forsendurnar. Í greinargerð með frumvarpinu á bls. 4 er rakið hvað sérfræðingafyrirtækin áttu að fara yfir og þar er einfaldlega bara lagt til að kannaðir séu þrír kostir.

Í fyrsta lagi er hin svokallaða núllleið, að gera ekki neitt. Ég held að það blasi við að einhvern veginn verði að hagræða og hugsanlega endurskipuleggja á Landspítalanum. Ég held að allir séu sammála um það þannig að sú leið fellur mjög snemma út úr samkeppninni. Síðan var önnur leið að byggja þetta risastóra bákn sem lagt var af stað með í upphafi. Það var fagur draumur í sjálfu sér og óskandi hefði verið að íslenska þjóðin hefði haft efni á því en að sjálfsögðu komst hún að því að það væri óskynsamlegt. Þá stendur í rauninni bara eftir að velja þá leið sem eftir er. Ég spyr: Hefði ekki verið skynsamlegast að velja algerlega hlutlausa sérfræðinga? Ég get svo sem ekki lagt mat á þessi norsku fyrirtæki, ég hefði bara talið eðlilegt að einhver annar aðili hefði fengið þau til að skoða þetta. Þau hefðu þá verið fengin til að finna hagkvæmustu leiðina. Ekki hefðu verið gefnir upp þrír valkostir heldur hefðu fyrirtækin einfaldlega verið fengin til að segja: Við erum búin að fara yfir þetta og það þarf að gera eitthvað. Við skiljum vanda ykkar í efnahagsþrengingunum, við veltum hinu og þessu fyrir okkur og teljum að þetta séu skynsamar leiðir. Ég hefði talið það eðlilegt.

Í sjálfu sér eru ekki margar athugasemdir sem setja einhvers konar fyrirvara á þetta mál og því langar mig til að benda á að fagráðuneytið sjálft, heilbrigðisráðuneytið, sendi frá sér álit þar sem þau segja í rauninni að þau hafi ekki skoðun á málinu en hæstv. heilbrigðisráðherra muni tjá sig um málið í ræðu ef þurfa þykir. Með leyfi forseta ætla ég að lesa eftirfarandi upp, af því að ég fann ályktunina:

„Ráðuneytið telur ekki tilefni til að gefa umsögn að svo stöddu þar sem heilbrigðisráðherra mun tjá sig um frumvarpið í umræðum á Alþingi ef þurfa þykir.“

Ég velti því alvarlega fyrir mér hvort þetta sé eðlilegt í ljósi þess að við erum að ráðast í framkvæmd sem mun hafa áhrif á alla sem vinna innan heilbrigðisstéttarinnar, nánast alla lækna á Íslandi. Við erum að tala um fagráðuneyti sem telur ekki tilefni til að gefa umsögn að svo stöddu. Landlæknisembættið hefur engar athugasemdir, fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu hafa engar athugasemdir. Sjúkraliðafélag Íslands, það ágæta fólk, vill koma því á framfæri að það sé samþykkt því að stofnað verði hlutafélag um bygginguna en hefur engar aðrar athugasemdir. Fulltrúi Framsóknarflokksins sem hljóp í skarðið fyrir mig í forföllum, hv. þm. Eygló Harðardóttir, benti á í bókun sem við sömdum að kannski hefði verið eðlilegra að ræða málið aðeins betur í nefndinni og að við hefðum andað aðeins. Ég vil samt taka fram að fjárlaganefnd og fulltrúar meiri hlutans eru að mínu mati allir af vilja gerðir til að taka upp bætt vinnubrögð og mér finnst þetta mál vera á margan hátt ágætlega unnið, svo að það sé sagt.

Ég bendi á í áliti minni hlutans að það þurfi að kanna forsendur, kostnaðarmat og aðra þætti verkefnisins betur áður en endanleg ákvörðun er tekin um bygginguna. Ég tel eðlilegt að ríkissjóður annist framkvæmdina án þess að henni sé komið fyrir í hlutafélagi. Ég held að það liggi algerlega fyrir að verktaki standi frammi fyrir dýrari lánskjörum en ríkissjóður. Eins og ég benti á áðan tel ég vafasamt að lífeyrissjóður láni verktaka til 40 ára fyrir verkefninu án þess að til ígildis ríkisábyrgðar komi, eins og gefið er í skyn í áliti meiri hlutans. Verktakar munu að sjálfsögðu beina ávöxtunarkröfu að fjárfestingunni sem ríkissjóður mundi ekki krefjast. Það mun leiða til aukins kostnaðar við framkvæmdina og þá tel ég að því miður hafi ekki komið fram sannfærandi rök fyrir því að hlutafélagaformið skili hagkvæmari byggingu eða rekstri en ef ríkissjóður annaðist alla þætti málsins. Ég tel vafasamt að hagkvæmustu kjör náist með því að sami aðili annist fjármögnun, byggingu og rekstur. Það hefði t.d. verið hægt að kanna betur hvort sérhæfing ákveðinna aðila í hverjum þessara málaflokka hefði getað skilað betri ávinningi en sú leið sem varð fyrir valinu. Minni hlutinn leggur til að unnin verði kostnaðar- og ábatagreining sjúkrahússins fyrir landið í heild og að hún verði unnin af óháðum aðilum áður en lagt verði í um 3 milljarða undirbúningskostnað.

Eins og málið hefur verið kynnt fyrir fjárlaganefnd verður ekki frekari kostnaður við hlutafélag en framlag upp á 20 millj. kr. hlutafé, þ.e. meiri hlutinn heldur því fram. Ég vil samt benda á að gert er ráð fyrir að lóðir og lóðaréttindi Landspítalans, einhverjar verðmætustu lóðir landsins, verði lagðar inn í hið opinbera hlutafélag. Þó liggja ekki fyrir tölur um stærð þeirra eða verðmæti, sem er í sjálfu sér hálfgalið ef maður hugsar það til enda. Ég bendi á að kostnaður ríkissjóðs við leigu af verktaka verður líklega hærri en ef ríkissjóður ætti mannvirkið. Fyrir liggur breytingartillaga þess efnis að Alþingi verði að samþykkja lög sem heimila framkvæmdina eftir að frekari kostnaðarupplýsingar liggja fyrir, sem verður að loknu útboði. Ákveði Alþingi að heimila framkvæmdina ekki mun undirbúningskostnaðurinn falla á hlutafélagið. Hann er tryggður með veði í opinberum eignum sem eru fyrrgreindar lóðir. Því mætti segja að kostnaður við frumhönnun og aðlögun lóðar, um 3 milljarðar kr., muni með einum eða öðrum hætti falla á ríkissjóð. Þetta tel ég ekki koma nógu skýrt fram í frumvarpi meiri hlutans.

Grunnforsendur arðsemismatsins byggjast á erlendum tölum og Framkvæmdasýsla ríkisins telur að næmni matsins geti verið plús/mínus 15%. Ég tel að nú þegar hafi verið gengið á hagræðingu í starfsemi spítalans sem er forsenda verkefnisins. Sú hagræðing sem nú hefur farið fram á að skila um 250 millj. kr. árlega en upphaflega var gert ráð fyrir að árleg hagræðing nýbyggingarinnar gæti numið 2,7 milljörðum kr. á ári. Forsendurnar fyrir þessu sem kynntar hafa verið virðast ganga út frá kostnaðarforsendum frá árinu 2008 framreiknuðum til ársins 2009. Frá þeim tíma hafa verið gerðar verulegar hagræðingarkröfur til heilbrigðisþjónustunnar með tilheyrandi niðurskurði. Minni hlutinn bendir á að þegar nýr spítali verður tekinn í notkun virðist gengið út frá því að fjárveitingar verði hækkaðar til samræmis við þær forsendur sem í gildi voru þegar áætlanirnar voru samdar. Því er líklegt að hækka þurfi fjárveitingar verulega á því ári þegar nýtt sjúkrahús hefur starfsemi sína. Ef aðstæður í efnahagslífinu hafa ekki batnað til muna má gera ráð fyrir að draga þurfi verulega úr starfsemi annarra heilbrigðisstofnana til að unnt verði að starfrækja nýja Landspítalann á grundvelli upphaflegra fjárhagsáætlana.

Í athugasemdum við lagafrumvarpið sem fjármálaráðherra hefur lagt fram segir, með leyfi forseta:

„Telja verður að það sé mikill kostur fyrir hið opinbera að kostnaður þess sé ákveðinn fyrir fram og greiðslur til framkvæmdaraðila séu tiltölulega fastmótaðar yfir samningstímann, sem getur náð yfir nokkra áratugi. Með þessu móti getur hið opinbera fært talsvert af áhættu verkefnisins yfir á framkvæmdaraðilann sem ber allan ófyrirséðan kostnað. Tilhögunin skapar því hvata fyrir framkvæmdaraðila til að meta á raunhæfan máta heildarkostnað verkefnis þar sem nánast ógerningur er að krefjast viðbótargreiðslna vegna ófyrirséðs kostnaðar.“

Þetta hljómar mjög vel í fljótu bragði en við skulum skoða þetta nánar. Ég tek nefnilega undir varnaðarorð Samtaka heilbrigðisfyrirtækja og Samtaka verslunar og þjónustu sem vara við röksemdafærslu sem þessari. Ef mið er tekið af þeim gögnum sem samtökin hafa undir höndum vantar mikið á að framkvæmdaraðilar geti gefið tilboð sem ná utan um allan mögulegan kostnað við framkvæmd sem þessa. Minni hlutinn telur að ekki hafi verið lögð gögn fyrir fjárlaganefnd sem draga úr þessari óvissu.

Þá kemur fram í athugasemdum með frumvarpinu að þetta hafi í för með sér, með leyfi forseta:

„… að við undirritun samnings um samstarfsframkvæmd vegna nýs Landspítala ná stjórnvöld að tryggja kostnað yfir allan framkvæmdatímann, sem er til bóta. Að sama skapi tryggir slík tilhögun að ríkið getur metið kostnaðinn heildstætt áður en það skuldbindur sig til greiðslu fjár og á því þann möguleika að snúa til baka frá hugmyndinni ef kostnaðurinn reynist of hár.“

Ég vil minna á í ljósi þessara orða, sem koma fram í athugasemdum með frumvarpinu, að undirbúningskostnaður verður fjármagnaður með veði í ríkiseignum, sem eru lóðirnar, og því verður 3 milljörðum kr. varið til undirbúnings framkvæmdarinnar. Þetta er mjög mikilvægt. Þrír milljarðar eru gríðarlega há tala, og í rauninni sama tala og ríkisstjórnin skar niður fyrir um ári síðan til aldraðra og öryrkja, þannig að menn geta rétt ímyndað sér hversu miklir hagsmunir eru í húfi. Ég tel að lífeyrissjóðirnir muni ekki lána til undirbúnings eða framkvæmda nema tryggt verði að öll lánsfjárhæðin fáist endurgreidd. Ég tel að þeim sé einfaldlega ekki stætt á öðru. Minni hlutinn telur að lífeyrissjóðirnir muni ekki lána fyrir sjálfri framkvæmdinni nema leigusamningur við ríkið liggi fyrir og að í honum felist ríkisábyrgð eða ígildi hennar. Þá tel ég engar líkur á því að umframkostnaður lendi á verktaka í einhverjum mæli og að hugsanleg áhætta vegna aukaverka muni endurspeglast í tilboðum í verkið. Ég get ekki betur séð en ríkið verði að greiða þennan kostnað að fullu.

Ég tel einnig að því miður muni framkvæmdirnar ekki fara af stað fyrr en ríkissjóður hefur tryggt allar þær greiðslur sem munu koma fyrir vegna ófyrirséðs kostnaðar. Að öðrum kosti er vandséð að lífeyrissjóðir muni lána fyrir framkvæmdinni og eiga á hættu að hún tefjist og um leið endurgreiðslur vegna óvissu. Vegna þessa telur minni hlutinn vandséð að áhætta ríkissjóðs minnki þar sem tæplega verður ráðist í framkvæmdir nema ríkissjóður taki á sig alla kostnaðaráhættuna. Minni hlutinn telur í kafla sem ég nefni „Skuldbindingar utan efnahags“ — ég tel að það sé algerlega óviðeigandi að skuldbindingar ríkissjóðs utan efnahags séu sífellt auknar, eins og til stendur með þessari framkvæmdaraðferð. Ég hvet til þess að lög um fjárreiður ríkissjóðs verði endurskoðuð til að eyða þeirri óvissu sem ríkir í bókhaldsmálum ríkisins um verkefni sem þetta og skýrt hefur komið fram hjá fulltrúum Ríkisendurskoðunar. Ég tel að ef fara eigi í framkvæmdina eigi ríkissjóður að annast hana beint.

Á fundum nefndarinnar hafa komið fram þau sjónarmið að þar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn banni ríkissjóði við núverandi aðstæður að taka lán sé sú leið fær að fela hlutafélagi framkvæmdina. Engin sérstök rök hafa verið færð fyrir því. Hjá nefndinni kom fram að sjóðurinn veit vel af framkvæmdinni, ég gat ekki skilið betur en það væri komið fram, sem og erlendir greiningaraðilar sem meta skuldatryggingaálag Íslands. Ég er ekki viss um að málatilbúnaður eins og sá sem hér er farið í slái ryki í augu þessara aðila.

Ég vil samt taka fram í lokin að ég er mjög ánægður með og tel afar jákvætt að meiri hlutinn hafi ákveðið að málið komi aftur til afgreiðslu Alþingis áður en ráðist verður í hugsanlegar framkvæmdir. Ég árétta samt brýna nauðsyn þess að niðurstöður, kostnaður og ábatagreining í samræmi við þær forsendur sem ég hef tilgreint liggi fyrir áður en málið verður afgreitt endanlega. Að sjálfsögðu hefði verið eðlilegt að þeirri vinnu væri lokið áður en frumvarp þetta verður samþykkt.

Hér er verið að ráðast í framkvæmd sem mun því miður ekki skila okkur þeim nauðsynlegu störfum sem ég hefði óskað að kæmu fram strax. Þau koma ekki fyrr en eftir tvö ár. Áætlað er að á því ári sem næstu framkvæmdir eiga sér stað verði um að ræða um 700 verk og það er jákvætt. Það er þó ekki á næsta leiti, svo því sé haldið til haga og fólk myndi sér ekki þær gyllivonir að ráðast eigi í þessa framkvæmd strax og að framkvæmdir séu handan við hornið.

Ég ítreka þá skoðun mína að ég hef áhyggjur af hag heilbrigðiskerfisins í heild sinni. Þeir ráðherrar Framsóknarflokksins sem hafa haldið á málum stóðu vel að heilbrigðiskerfinu og OECD taldi að það væri lofsvert. Ég hef líka barist fyrir því að við endurskipuleggjum framkvæmd fjárlaga. Við komum til með að fara mun ítarlegar í alla kostnaðargreiningu. Ég held að það liggi fyrir að það vanti upp á marga af þeim þáttum sem önnur ríki telja eðlilegt að séu kannaðir áður en farið er í svona risaframkvæmdir. Ég get nefnt sem dæmi Bandaríkjamenn sem hafa sett fram lista í níu liðum sem þarf að uppfylla, t.d. að óháður aðili verði fenginn til að meta hagkvæmni verksins.

Ég læt þá máli mínu lokið, nema það séu einhver andsvör, og mun sitja hjá við afgreiðslu málsins.