138. löggjafarþing — 134. fundur,  10. júní 2010.

bygging nýs Landspítala við Hringbraut.

548. mál
[00:11]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður hefur ekki hlustað á ræðu mína áðan. Ég stakk upp á því að við hefðum tvöfalt bókhald, eitt fyrir börnin okkar þar sem sannleikurinn er sýndur og annað fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þar sem yrði platað.